Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Síða 10

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2000, Síða 10
2. TÚLKUN Á LAGAREGLUM UM RÖKSTUÐNING DÓMA I forsendum dóma skal greina rökstudda niðurstöðu um sönnunaratriði og lagaatriði eins og segir í 114. gr. laga um meðferð einkamála. Sambærileg regla kemur fram í 135. gr. laga um meðferð opinberra mála en þar segir að í dómi skuli m.a. greina röksemdir dómara um niðurstöðu og viðurlög og að í rök- semdunum skuli koma skýrlega fram hvað dómari telji sannað og með hverjum hætti. Reglumar sjálfar segja ekki til um það hvernig rökstuðningnum skuli að öðm leyti háttað. Það þýðir hins vegar ekki að dómari geti að því frátöldu hagað rökstuðningi að eigin vild. Þess vegna verður að leita skýringa á því hvað felist nánar í þessum reglum. Ýmis atriði geta haft áhrif á það hvemig þessi lagaákvæði verða túlkuð. í fyrsta lagi verður að líta svo á að reglumar beri að skýra í samræmi við grunn- rökin fyrir tilvist þeirra, sögulegan bakgmnn og tilganginn sem þeim er ætlað að þjóna. í öðm lagi þarf að túlka reglumar í samræmi við önnur réttarfars- ákvæði, m.a. þau sem fjalla um form og efni dóma og aðrar lagareglur sem binda dómara á ákveðinn hátt í rökfærslunni eða hafa áhrif á það hvemig reglunum verður beitt. Lagareglur mæla t.d. fyrir um það hvernig málsaðilum beri að leggja grundvöll að dómsmáli. Verkefni dómsins er síðan að komast að niðurstöðu. Það gerir hann með því að leysa úr ágreiningsefnum, meta sök, taka afstöðu til þess hvað teljist sannað og dæma um kröfur á lagalegum granni. Fyrir öllu þessu þarf dómurinn að færa rök en rökfærslunni þarf að haga með tilliti til sakarefnisins og viðeigandi réttarreglna. í þriðja lagi geta venjur ráðið nokkru um það hvernig rökstuðningi er hagað í dómsúrlausn. Því verða regl- umar skýrðar í samræmi við venjur sem dómstólar hafa mótað í þessum efnum. Loks þarf að skilgreina hugtök, sem koma fram í lagatextanum, svo sem rök- studd niðurstaða og röksemdir dómara en það verður að nokkm leyti gert með tilvísun til hugtaka og aðferða rökfræðinnar. Hér er einnig rétt að hafa í huga að margt annað en lagareglur, venjur og lög- mál rökfræðinnar getur haft áhrif á það hvernig dóntari rökstyður niðurstöðu í dómsmáli. Má þar t.d. nefna almenn viðhorf til dómstóla og væntingar sem til þeirra eru gerðar vegna stöðu þeirra í stjómskipaninni eða af öðrum ástæðum. Þannig geta aðstæður í þjóðfélaginu, tíðarandinn og þjóðfélagsþróunin haft áhrif á það hvernig dómari hagar rökstuðningi. Eigin viðhorf dómara geta að nokkru haft áhrif á aðferðir eða leiðir sem dómari velur í rökstuðningi fyrir dómsniðurstöðu. Athuganir á dómum leiða þetta stundum í ljós. í erindi Ármanns Snævarr, sem hann nefnir Dómar og aldarfar og birt er í Úlfljóti, 3.- 4. tbl. 1982, segir á bls. 109 að dómar séu hugverk og þeir beri höfundum að sínu leyti vitni. Dómar fari eigi aðeins með reifun á sakarefninu heldur geymi þeir og ályktanir dómara og efnislegar ákvarðanir á lagagrunni, eins og hann horfi við dómara. Dóm- arnir leiði sitthvað í ljós, ef gaumgæfðir eru, um menntun dómaranna, reynslu, þjálfun, uppeldi og félagslegt baksvið. Þeir geft innsýn í hugarheim þeirra, hugarstefnur, lífs- viðhorf og næmleika fyrir mannlegum eigindum og ekki síst mennskum breiskleika. 176
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.