Hugur - 01.01.1996, Síða 34

Hugur - 01.01.1996, Síða 34
32 Kristján Kristjánsson ég held að eigi að koma í stað athafnakenningar nytjastefnu- mannanna.57 Dygðafræðingamir gefa sér þannig að dómar um athafnir manna séu á endanum skýranlegir á grundvelli dóma um „veru“ þeirra: að persónan standi röklega framar gjörðunum. Til sanns vegar má færa að maður geti við ákveðnar aðstæður breytt á hugrakkan hátt, til dæmis vegna ytri þvingunar, án þess að vera í raun hugrakkur (samanber máltækið að margir væru heiglar ef þeir þyrðu) og að slQc breytni hafi lítið siðferðisgildi. En hvar birtist vera manns annars nema í óþving- uðum gjörðum hans og ástæðum hans fyrir þeim?58 Getur maður verið umhyggjusamur en látið hjá líða að vefjast í vandræðum annarra; verið hugrakkur en lagt skottið milli fótanna þegar hann lendir í klípu? Lýsti slíkt ekki fremur því sem Þórbergur kallaði „skapgerðarheimsku“ en raunverulegri skapgerð - karakter? Aðskiln- aður veru og verknaðar býður heim hættunni á sálrænni og siðlegri forbrekkisgöngu þar sem sífellt fleiri siðlausar athafnar eru réttlættar sem undantekningar frá reglunni: „Ég er nú samt heiðarlegur þó að ég hafi misstigið mig í þessu tilfelli..." Hvað mega tilfellin verða mörg? Og er nóg að tré hafi yfirbragð fijósemi þó að ávextirnir sem við lesum af greinum þess séu rotnir?59 Nytjastefnumaðurinn leggur vissulega stund á þá tegund íhugunar um val milli tveggja harðra kosta sem Anscombe segir að „eiginkonur og skjallandi vinir“ leggi hart að mönnum að stunda60 og Þorsteinn 57 „Að gera og að vera...“, bls. 77. f „Utilitarianism and the Virtues" gengur Foot svo langt að halda því fram að sjálf forsenda „athafnakenningarinnar" (leikslokakenninga), að stefna beri að „besta ástandi mála“, standist ekki nákvæma skoðun; hún sé annaðhvort afstæð við mælandann eða marklaus! Öll rök hennar fyrir því eru þó harla ótrúverðug og stangast a.m.k. öldungis á við hversdagslega málnotkun þar sem þetta orðasamband og önnur álíka þjóna mikilsverðu hlutverki. 58 Phillip Montague hugleiðir þessa spurningu, sem og sambandið milli dóma um persónur og athafnir, í „Virtue Ethics: A Qualified Success Story“, American Philosophical Quarterly, 29 (1992), og kemst að þeirri niðurstöðu að hér sé dygðafræðunum verulega ábótavant. 59 Louden, R. B. ræðir þessa og aðra ágalla dygðafræðanna í „On Some Vices of Virtue Ethics", American Philosophical Quarterly, 21 (1984), sjá einkum kaflana „Moral Backsliding" og „Style Over Substance". 60 „Siðfræði nútímans", bls. 195.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.