Hugur - 01.01.1996, Qupperneq 42

Hugur - 01.01.1996, Qupperneq 42
40 Vilhjálmur Ámason Þetta mætti kalla áherslu á frelsi fjöldans sem félagslegt markmið, oft kallað „hið fijálsa þjóðfélag“, sem væri þá mótvægið við áhersluna á frelsisréttindi einstaklingsins. Mill hlotnaðist sá heiður að kynna okkur fijálshyggjuna, og við skulum leyfa Karli Marx að vera fyrsti talsmaður jafnaðarstefnunnar.13 Ekki vegna þess að hann hafi lagt grunninn að henni heldur vegna þess að hann hefur sett hana fram á róttækastan hátt. „Marx leit á frelsið sem sjálfsstjóm, að leggja eigið sjálf og helstu hlutverk þess undir meðvitaða og skynsamlega ákvörðun sína,“ skrifar Allen Wood í prýðilegri bók sinni um Marx.14 Hvað þetta snertir á Marx fyllilega heima í hópi heimspekinga á borð við Platon, Spinoza, Rousseau, Kant og Hegel, sem litu svo á að gildi frelsisins lægi fyrst og fremst í skynsamlegri sjálfstjórn og siðferðilegu sjálfræði.15 Það sem gerir afstöðu Marx sérstaklega áhugaverða í þessu samhengi em þær þjóðfélagsályktanir sem hann dregur af þessu viðhorfi. Kenningar hans ganga að miklu leyti út á að sýna fram á hvaða félagslegu skilyrði em nauðsynleg til þess að frelsi í skilningn- um sjálfræði geti orðið að veruleika. Ályktanir hans af þessum hugmyndum kallast á við hina þijá annmarka fijálshyggjunnar sem ég lýsti hér að framan. í fyrsta lagi virðist sem hugmynd Marx um manninn sé gerólík þeirri einstaklingshyggju sem er samgróin fijálshyggjunni. í augum Marx er maðurinn „heild félagslegra afstæðna“ og þess vegna er að hans mati tilgangslaust að líta á frelsið í ljósi einangraðra einstaklinga og sértækra réttinda þeirra. „Vegna þess að frelsið krefst þess, að mati Marx, að félagslegar afstæður manna séu framleiddar með fullri vitund [...] er aðeins hægt að öðlast það í samfélagi við aðra en ekki með 13 Ég vek athygli á að hér nota ég orðið jafhaðarstefna yfir margvíslegar kenningar þar sem áherslan er á frelsið sem félagslegt markmið fremur en einstaklingsréttindi. 14 Allen Wood, Karl Marx (London: Routledge & Kegan Paul 1981), s. 51. í þessum orðum birtist vel jákvætt frelsi í skilningi Berlins: „... hinn jákvæði skilningur frelsis kemur í ljós ef við reynum ekki að svara spumingunni „Hvað leyfist mér að gera eða vera?“ heldur „Hver stjómar mér?“ eða „Hver ákveður hvað mér leyfist eða leyfist ekki að vera eða gera?“,“ Heimspeki á tuttugustu öld, s. 164-165. 15 í samræmi við þetta kalla ég jákvætt frelsi „þroskafrelsi" í Siðfrœði lífs og dauða, s. 94.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Hugur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.