Hugur - 01.01.1996, Page 50

Hugur - 01.01.1996, Page 50
48 Vilhjálmur Ámason sig, safnast saman og ræða mál, og gefur þeim merkingu.32 Þessi réttindi fá áhrifamátt sinn í krafti þess að við höfum aðgang að opinberum vettvangi33 þar sem upplýst og gagnrýnin skoðanamynd- un á sér stað. Leitinni að þeirri stofnanaskipan sem auðveldar mótun þessa almannavilja lýkur aldrei og ef til vill er hún brýnasta verkefni siðmenningarinnar ef við ætlum að efla sjálf okkur sem frjálsar verur.34 f öllu falli þýðir þetta að gera verður lýðræðiskröfunni a.m.k. jafnhátt undir höfði og kröfunum um efnahagslegan jöfnuð og einstaklingsfrelsi. Frelsið sem birtist í lýðræðislegri rökræðu um mótun sameiginlegra lífsskilyrða er þáttur sem vantað hefur inn í hefðbundnu orðræðu um frelsið. Þess vegna hafa bæði frjálshyggjan og jafnaðarstefnan gefið skakka mynd af meginverkefni félagslegra umbóta. Ég sagði hér að ofan að þessu verkefni félagslegs frelsis er aldrei lokið og eflaust má færa mörg rök fyrir því að lýðræðishugsjónin sé óraunsæ. Ein mikilvæg rök eru þau að í neysluþjóðfélagi nútímans virðist fólk vera fyllilega sátt við tilveruna og sækist fremur eftir öryggi en ábyrgð. Sú staðreynd breytist hins vegar ekki að þetta þjóðfélag veitir okkur ekki frelsi nema í mjög takmörkuðum skilningi. En hitt er lflca staðreynd, eins og Aristóteles benti á, að við erum verur sem færar eru um að ræða málin á skynsamlegan hátt og að við komum alltaf til með að þurfa að leysa vandamál okkar í samræðum. Mikilvægasta spurningin er því sú, hvernig við tölum saman. Er öllum leyft að taka þátt í samræðunum? Hlustum við á rök? Höfum við áhuga á að komast að skynsamlegu samkomulagi? Frá þessu sjónarhorni séð, felur hugmyndin um frjálsa pólitíska samræðu í sér útópíska skírskotun til samfélagsforms þar sem 32 Sbr. Jay Bernstein, „Habermas“, Conceplions of Liberty in Political Philosophy (sjá neðanmálsgrein 30), s. 401. 33 Hér er átt við það sem á þýsku kallast „Öffentlichkeit" og á ensku „public sphere“ sem er sá vettvangur þar sem almenningsálit myndast með óheftri umræðu um þau mál sem varða almannahag. „Öffentlich- keit“ hefur einnig verið þýtt á íslensku sem „almenningur", sbr. N. Gamham, „Fjölmiðlar og „almenningur“,“ þýð. Stefán Jón Hafstein, Tímarit Máls og menningar, 1. hefti 1987. 34 Sbr. grein mína „í leit að lýðræði", Skírnir (haust 1991), s. 474—479. Segja má að þessi lýðræðishyggja sé hin félagslega samsvörun þess sem ég kalla „valfrelsi" í Siðfrœði lífs og dauða, s. 94.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.