Hugur - 01.01.1997, Qupperneq 7

Hugur - 01.01.1997, Qupperneq 7
Inngangur ritstjóra Þá er Hugur loksins kominn út! Greinarnar að þessu sinni eru efnis- miklar og af ýmsum toga sem endranær. Þó ber að geta þess, að heftið hefur ekkert ákveðið þema, sem gengið var út frá við öflun efnis. Astæður þess eru margvíslegar. Helsta ástæðan er þó e.t.v. sú, að á hausti urðu ritstjóraskipti, þar sem Skúli Pálsson gat ekki lengur séð um útgáfu tímaritsins vegna anna. Var verkið þá falið undirrituðum, sem þurfti að vinna úr því efni, sem þegar hafði verið safnað saman, og koma mynd á það. Þær greinar, sem þegar hafði verið aflað, voru margvíslegar og höfðu breitt umræðusvið. Það var því orðið heldur seint að fara að safna efni í eitthvert ákveðið þema, þegar tími útgáfu var að renna upp. Undirritaður fór þó á stúfana og leitaði efnis, sem með einhverju móti gæti gefið heftinu einhverja heildstæða mynd. Því má segja, að á endanum hafi Hugur eftir allt saman rauðan þráð, sem líta mætti á sem þema heftisins: Sáttmálakenningar. Af þeim fimm fyrirlestrum, sem birtast hér, hverfast fjórir þeirra að einhverju leyti um þessa hugmynd og ber þar þrjú nöfn helst á góma: Immanuel Kant, John Rawls og Júrgen Habermas. Fyrsti fyrirlesturinn, Leikreglur og lífsgildi, er innsetningarfyrirlestur Vilhjálms Amasonar, þar sem tekist er á við megininntak siðferðilegrar umræðu. Þar kemur Vilhjálmur víða við og veltir m.a. fyrir sér spumingunni, hvort samræðusiðfræði geti reynst okkur happadrjúg í siðferðilegri rökræðu. Samræðusiðfræðin er svo til umfjöllunar í næsta fyrirlestri, sem Stefán Erlendsson flutti á málþingi Félags áhugamanna um heimspeki í Viðey 1995. Þar fjallar hann um kenningar Habermas og framlag hans til þeirrar siðferðilegu rökræðu, sem mikið hefur verið fjallað um undanfama áratugi. Habermas er þó hvað þekktastur fyrir að móta þá hugmynd, sem nefnd er samræðu- siðfræði, og er hún varla nefnd á góma án þess að nafn hans fylgi fljótlega í kjölfarið. Þriðji fyrirlesturinn, Gagnrýni opinberrar skynsemi, var fluttur á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla Islands í maí 1997, en þar fjallar Halldór Guðjónsson um hugmyndir þeirra Rawls og Kants og ber þá saman í ýmsu tilliti. Rawls er þekktur að sáttmála- kenningu sinni um samfélagið og hefur verið áhrifamikill á síðustu áratugum hvað varðar efni þar að lútandi. Smíðisgripir Rawls og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Hugur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.