Hlín - 01.01.1933, Síða 8
G
fílin
dóttir. — Talaði hún um þá brýnu nauðsyn, sem það
væri fyrir þjóðina, að vinna úr ullinni, sem nú væri
svo verðlítil til útflutnings, og taldi að vefnaðurinn
mundi vera styst á veg kominn hjá okkur af tóvinn-
unni og því sjerstaklega ástæða til að reyna að auka
hann. Einnig mintist hún þess, að Halldóra Bjarna-
dóttir hefði haft framsögu í þessu máli til margra
ára, en vegna annríkis ekki getað sótt þennan fund
S. N. K.
Formaður gat um, að komið hefði styrkbeiðni frá
kvenfjelaginu »Stjarnan«, Kópaskeri, til vefnaðar-
námskeiðs, sem þær höfðu haldið undanfarinn vetur.
Raddir komu fram frá fulltrúum fundarins um, að
þar sem fjelag þetta væri nú að ganga inn og hefði
einnig lokið við námsskeiðið, álitu þær áð ekki væri
hægt að veita því styrk að svo stöddu.
Að umræðum loknum kom svohljóðandi tillaga frá
Þóru Stefánsdóttur:
Fundurinn felur stjórninni að athuga á hvern hátt
helst væri hægt að styrkja fjelagsdeildirnar til auk-
inna vefnaðarframkvæmda á sambandssvæðinu, og
sjái hún sjer fært að styrkja viðleitni deildanna í
þessu efni, þá óskar fundurinn að það verði gert og
lýsir áhuga sínum á málinu.
Tillagan samþykt í einu hljóði.
Uppeldismál. Framsögu hafði Sólveig Pjetursdóttir.
— Áleit hún að fyrsta sporið til góðs uppeldis væri
að byrja sem fyrst á börnum, og væri það móðirin
fyrst og fremst sem ætti að glæða hið góða hjá börn-
unum. Líka taldi hún það alvöru- og nauðsynjamál,
að sem fyrst kæmust á stofn sumarhæli fyrir kaup-
staðabörn.
Ýmsar konur tóku til máls og' lýstu áhuga sínum
á málinu.
Svohljóðandi tillaga kom frá frummælanda;
a