Hlín - 01.01.1933, Síða 48
46
Hlin
Frú Elin Briem Jónsson.
Fáar konur hjer á landi raunu vera eins þjóðkunnar
fyrir afskifti sín af mentamálum kvenna eins og frú
Elín Briem Jónsson, og vil jeg nú í fáum dráttum
rifja upp afskifti hennar af þeim málum.
Ytrieyjarskólinn: — Á þessu ári er hálf öld liðin
síðan Elín Briem varö forstöðukona kvennaskóla
Skagfirðinga og Húnvetninga, er þeir settu á stofn
aö Ytriey á Skagaströnd haustið 1883.
Nokkrum árum áður höfðu áhugasamai' konur og
ménn í þessum sýslum stofnað og starfrækt kvenna-
skóla á sveitaheimilum, og hafði Elín kent tvo vetur
á Hjaltastöðum og einn vetur á Lækjamóti. Sumarið
1881 fór hún til Kaupmannahafnar og var þar tvö
næstu ár á kennaraskóla, en þegar hún kom heim
hingað aftur, tók hún viö forstöðu Ytrieyjarskólans
og hafði sjer til aðstoðar Sigríði Jónsdóttur frá
Djúpadal, sem verið haföi nemandi hennar og síðan
tvö ár við nám í Danmörku.
Þenna fyrsta vetur voru 16 nemendur í skólanum.
Ekki leiö á löngu að það orð færi af skólanum, að
þarna væri æskilegasta leiðin fyrir sveitastúlkur til
að afla sjer bóklegrar og verklegrar kunnáttu, enda
var skólinn sniðinn eftir þörfum þeirra, sem áttu að
njóta, og þess gætt í hvívetna, að árangur af náminu
yrði þeim sem drýgstur.
Meö hagsýni og sparsemi tókst forstöðukonu og
skólanefnd að koma hag skólans þannig fyrir, að
skólavistin kostaði aðeins 120 kr. yfir námstímann —
1. okt. til 14. maí, — og duglegar stúlkur., sem upp-
fyltu sett skilyrði í reglugerð skólans, fengu 20 kr.
styrk.
Þetta kom sjer vel, því margar stúlkurnar, sem