Hlín - 01.01.1933, Side 36
34
Illín
— Kvenfjelag Húsavíkur gaf vandaöa stundaklukku.
— Fulltrúar á fundi S. N. K., er haldinn var á Laug-
um sumariö 1929, gáfu skólanum kr. 160.00. — Var
því fje variö fyrir skáp, stóran og prýðilegan, er
stendur í dagstofu og aðalkenslustofu skólans. Er sá
skápur heimagerður eins og hin önnur húsgögn.
Skólinn er skiljanlega sjerstakt , eftirlætisgoö og
skjólstæðingur kvenfjelagsins og sýnir þaö sig yið
og við í verki.
Vorið 1931 gaf fjelagið kr. 500.00 til stofnuuar
skrúð- og matjurtagarðs við skólann. Nú í vor starf-
aði Reykdæladeild að gróðursetningu trjáplantna við
skólann. Og nú hygst Reykdæladeild að gefa skólan-
um 50 kg. af ull, til þess að hann geti ár hvert hal't
fyrirliggjandi nóg band til vefnaðar.
Konurnar hjerna í sýslunni eru fátækar flestar.
Þær þurfa að vinna allan daginn, innanbæjar eða
utan. Þær ala börnin, fóstra þau og fæða. Þær tendra
eldinn á arni heimilisins og gæta hans, meðan lífiö
endist. Sjaldan mega þær fara að heiman og fáar eru
stundirnar til lestrar. Þó ala þær í brjósti hugsjónir
og þrár, er ná út fyrir heimilið þeirra. Þetta er að
nokkru að þakka þrótti kynstofnsins og að nokkru
leyti uppeldi og lífi í íslenskri sveit. Dreifða bygð-
in íslenska hefir, þrátt fyrir þá erfiðleika, sem henni
fylgja, veitt skilyrði til andlegrar heilbrigði og þroska.
í kyrð og næði þroskast sál barnsins og unglingsins
við barm náttúrunnar. Ljóð eru lærð og lesnar bæk-
ur. Fegurð og inndæli náttúrunnar laðar unglingnum
Ijóð á tungu. Þrár fá að skapast og þroskast, sem að
vísu ná ekki að rætast oft og tíðum, en auðga lífið og
lifa með manni til dauðans. Þrátt fyrir erfiði full-
orðins áranna, varðveita konurnar andlegt líf sitt og