Hlín - 01.01.1933, Blaðsíða 132
Aluminiumhrífurnar
eru að öllu ieyti gerðar úrþessu laufljetta, en þó sterka efni: Tind-
ar, kl^, haus og skaft. Þær hafa reynst mjög vel eins og sjá má af
eftirfarandi útdrætti úr ummælum merkra manna:
ÓLAFUR JÓNSSON, framkvæmdastj. Ræktunarfélags Norðurlands:
»Aluminium-hrífurnar eru sérstaklega léttar og liprar og taka í
þeim efnum langt fram öllum tréhrífum, er ég hefi haft kynni af«.
BERGSTEINN KOLBEINSSON, bóndi, Leifsstöðum í Eyjafirði:
>Rakstrarkonurnar, sem notað hafa þessar hrífur hjá mér í sumar,
telja sig raka meira með þeim en tréhrífunum, enda fást þær ekki
til að nota aðrar hrífur«.
EINAR ÁRNASON, alþingismaður, Eyrarlandi:
>Mitt álit er, að þessar hrífur hafi svo marga kosti fram yfir tré-
hrifurnar, að ekki liði á löngu, þar til að þær hafa að mestu út-
rýmt gömlu hrífunum*.
Hrífurnar og hrífuhausana geta menn pantað eða fengið keypta
hjá kaupfjelögum og kaupmönnum út um land. Sölumaður í Reykja-
vík er Guðjón Jónsson, Hverfisgötu 50.
Virðingarfylst.
»IÐJA« Akureyri, Pósthólf 111. Sími 190 og 33.
(Sveinbjörn Jónsson).
lslensk íjallagrös.
Sel v i n s u ð fjallagrös (vel hrein og þur, en ekki blaðtínd)
og sendi gegn póstkröfu hvert á land sem er. Verð 1,50 kg.
Hallgrímur Slgfússon,
Grjótárgerði í Fnjóskadal, S.-Ping.
ísi,enskt GDLRÓFUFRÆ.
Sæmundur Einarsson, Stórumörk, Vestur-Eyjafjallahreppi, Rang-
árvallasýslu, selur heimaræktað gulrófufræ og sendir gegn póst-
kröfu hvert á land sem er. Gulrófufræ undan Eyjafjöllum er lands-
kunnugt.
islendingar, notið eingöngu íslenskt gulrófufræ. Pað er
bragðbesf, geymist best,trjenar sístog gefurbesta uppskeru.