Hlín - 01.01.1933, Side 51
Tílín
49
nokkru fje í þessu skyni. Og vorið 1897 var stofn-
aður hinn fyrsti hússtjórnarskóli á íslandi. Húsnæði
fjekk hann í hinu nýja samkomuhúsi iðnaðarmanna
»Iðnó«, sem Elín Bi'iem tók á leigu, og forstöðukona
varð frændkona hennar Hólmfríður Gísladóttir, sem
í þvi skyni hafði lært á hússtjórnarskóla í Kaup-
mannahöfn. Þetta var heimavistarskóli með matsölu
og fjekk skólinn fljótt mikla aðsókn. En þegar Elín,
áriö 1901, fór norður til að veita Blönduósskólanum
forstöðu, afhenti hún Búnaöarfjelagi fslands skólarm
með innbúi og ágætri lóö við Lækjargötu, með þvi
skilyrði, að það efldi hann og starfrækti. Hugði
hún þannig best borgið þessu áhugamáli sínu. Er von-
andi að Búnaðarfjelag íslands sjái sjer fært að haída
áfram þessu áhugamáli hennar, sem einnig er nauð-
synjamál allrar þjóðarinnar.
Það er þannig rnikið starf, sem frú Elín Briem
Jónsson hefir unnið í þágu mentamála kvenna, þar
sem hún hefir skrifað ágæta matreiðslubók, veitt fjöl-
sóttum skóla forstöðu nær 20 ár, stofnað fyrsta hús-
stjórnarskólann og gefið þjóöinni hann og álitlegan
sjóð til kvenmentunar.
Margrjet K. Jónsdóttir.
Frá Hjarðarholti.
Jóhanna Eggertsdóttir, f. Briem
Það á vel við að »Hlín« flytji öðru hvoru lýsingar
af þeim konum, sem hafa verið sómi sinnar stéttar.
Konum, sem hafa fætt og fóstrað stóran og glæsilegan
barnahóp, alið önn fyrir hrumum gamalmennum, búið
við þjóðleið og veitt ríkulega öllum gestum, sem að
garði komu, risið árla úr rekkju og gengið seint til
svefns. Ein meðal þeirra merkilegu sveitakona, sem
4