Hlín - 01.01.1933, Blaðsíða 40
38
Hlin
Skólaskýrsla Húsmœðraskólans á Laugum
1931—32. (3. skólaár).
(útdráttur).
Kenshikonur skólans:
Kristjana Pjetursdóttir, forstoðukona, Halldóra Sig-
urjónsdóttir, Kristjana Hannesdóttir, Guðfinna Jóns-
dóttir og Áslaug Aðalgeirsdóttir (þær 3 síðastnefndu
tímakennarar).
Kristjana Pjetursdóttir kendi veí'nað, sauma, við-
gerð og hreinsun á fatnaði og herbergjaræstingu.
Halldóra kendi matreiðslu, matefnafræði, þvott, slétt-
un á.þvotti og umgengni í búri og eldhusi. — Krist-
jana Hannesdóttir kendi íslensku, Guðfinna söng og
orgelspil og Áslaug vjelprjón.
Kenslunni var liagað þannig:
Námsmeyjunum var skift, eins og hin fyrri ár, í
3 flokka milli aðalverklegu námsgreinanna: Mat-
reiðslu, sauma og vefnaðar. Voru 5 stúlkur í hverjum
flokki. Skiftust flokkarnir á um námsgreinarnar og
hlaut hver námsmey rúmlega 8 vikna nám í hverri
grein.
Vefnaö og sauma varð að kenna á sama tíma (af
sömu kenslukonu) og hlaut því tilhögun á vinnubrögð-
um að fara nokkuð eftir því. Tímanum var ekki ná-
kvæmlega skift milli fatasaums og útsaums, en til
fatasaums var þó varið miklu meiri tíma. Alls mun
handavinnan hafa verið kend um 7—8 klst. á dag,
frá kl. 9 árd. til 4—5 síðdegis.
Námsmeyjum var kent að jita, hreinsa og pressa
gömul föt og sníða upp úr þeim. Reynt var að vekja
áhuga þeirra fyrir því að nota hentug og haldgóð