Hlín - 01.01.1933, Blaðsíða 122
120
Hlin
halda við með taði eða mó, eftir að ofninn er hitaður
upp með kolum, einnig má baka við tað og mó ein-
göngu og alls ekki nauðsynlegt að hafa kol. — Ef baka
á rúgbrauð, er best að nota ekki kol, hætt við að brauð-
in bráðbakist um of.
Stundum höfum við bakað eingöngu við trjespæni,
kolamylsnu og margskonar rusl, sem ekki væri gott að
nota í öðrum eldstæðum og hefur þetta tekist vel, en
jeg býst ekki við, að þeir sem eru ofninum óvanir, gætu
bakað við það eldsneyti svo vel færi, fyrst í stað.
Óli litli.
Þýlt úr norsku.
Óli litli frá Mýrarkoti ólst upp í afskektum fjalldal í Nor-
egi á öldinni sem leið.
Óli var lágur vexti og gildur, saman rekinn en letilegur og
þrjóskulegur á svip, augun sljóleg og hárlubbinn litlaus, ó-
þægur var hann og latur í meira lagi. Ekki svo að skilja að
hann væri neitt veill eða vanmáttugur. Ja, nei, nei. En hann
hafði orðið fyrir því óláni, þegar hanh var lítill að lenda hjá
frænku sinni, gamalli konu, sem dekraði við hann á allar lund-
ir, Ijet hann aldrei gegna og aldrei gera neitt, nema það sem
honum sjálfum gott þótti, enda nenti hann engu og hugsaði
ekki um annað en mat, nenti varla að leika, sjer einu sinni, en
mat þurfti hann á við tvo.
Þegar Óli var 7—8 ára gamall, dó frænka hans, og dreng-
urinn varð að fara til vandalausra. Fyrsti húsbóndi Óla litla
ætlaði að reyna að nota hann til að líta eftir kindum utan við
túnið, en til þess þurfti að vera snar í snúningum og hafa vak-
andi auga með ferðum kindanna, fljótur að hlaupa og fljótur