Hlín - 01.01.1933, Side 19
Hlin
17
Kvenfjelagið »Stjarnan« í Núpasveit í Norður-Ping-
eyjarsýslu
er stofnað 13. apríl 1925. Stofnendur voru 12 konur,
nú eru 14 konur í fjelaginu, allar g-iftar, og flestar
húsfreyjur hjer í Núpasveit. Ungu stúlkurnar höfðu
allar gengið í ungmennafjelag, sem stoínað var sama
ár, en nokkru fyr, svo þeim fanst nóg að vera í einu
fjelagi til að byrja með. — Þó við sjeum ekki fleiri en
þetta, höfum við mikið gert fyrir sveitina, og það eru
okkar bestu stundir, þegar við komum saman að ræða
okkar áhugamál. Við höfum fundi hver hjá annari og
er þá oft glatt á hjalla yfir kaffinu, sem altaf er sjálf-
sagt á eftir. Við höfum samkomu einu sinni á vetri, og
er þá leikið og sungið, stundum ræðuhöld og upplestur,
dansað á eftir og kaffisala. Þetta hefur æfinlega tekist
vel, og við höfum haft mikið upp úr þessu, mest kr.
600.00 fyrir eina samkomu, en minst ki-. 100.00.
Við höfum gefið kirkjunni, sem nýlega er reist á
Kópaskeri, hljóðfæri, sem kostaði kr. 800.00, lagt kr.
300.00 í skólahúsbyggingu og erum að leggja síma í
sama skólahús; við höfum gefið sjúklingi kr. 100.00
og stutt eitt fátækt heimili árlega. Saumanámsskeið
höfðum við einn vetur. Nú er garðræktin okkar áhuga-
mál. Þrír hreppar hjeraðsins hafa sameiginlega hjúkr-
unarkonu og gjalda henni fastakaup sitt, en ef íatæk
heimili, sem þurfa hjálp hjúkrunarkonu, treysta sjer
ekki til að borga dagkaupið, greiðir kvenfjelagið það.
Fjelagið á upp undir 1000.00 kr. í sjóði.
Tóvinna er æði mikil í sveitinni, þó ekki sje nema ein
spunavjel geta allir fengið að nota hana, sem vilja, og
held jeg að hún geti fullnægt. Það halda sumir enn
fast við rokkinn sinn og nota ekki vjelina, eigi að síð-
2