Dvöl - 01.03.1937, Page 9

Dvöl - 01.03.1937, Page 9
VÖL 71 T\ fengið skiprúm, en honum tókst að halda í sér lífinu með því að veraíhinu og öðrusnattiniðrivið skipakvíarnar. Seinna fékk hann atvinnu sem afgreiðslumaður í nýlenduvöruverzlun. Það var um það leyti, sem hann fór að búa í skítuga leiguhjallinum hjá frú Southworth, eitthvað um mánuði áður en ég kynntist honum. Hann sagði mér þetta allt á nokkrum dögum. . . . ,,Hvað er það, sem þér þráið?“ spurði ég. ,,Að hverju eruð þér að leita?“ ,,Égveit það ekki“,sagði hann. „Ég vildi, að guð gæfi, að ég vissi það. Ef ég vissi það, þá gæti ég lagt niður þessa þungu byrði og hvílt mig“. Við sátum þegjandi og reykt- um. Við vorum nú orðnir svo kunnugir, að við gátum setið tímunum saman í sama herberg- inu, án þess að yrða hvor á ann- an. „Hvar hafið þér lært tré- skurð?“ spurði ég af tilviljun. Hann leit á mig. en svaraði ekki ......Frú Southworth sagði mér, að þér væruð að skera út ein- hvern trédrumb", hélt ég dræmt áfram, „og svo sá ég. að þér fóruð með soæni út frá yður þarna um kvöldið . . . . “ Varir hans opnuðust og hann virtist að því kominn að segia mér eitthvað. en svo snerist hon- um hugur. ,.Nú fer ég að fara". Þofirar hann kom út að dvrunum, sr.eri þann við og kom aftur til mín: „Þér eruð ekki reiður, er það?“ „Auðvitað ekki", svaraði ég. „Hvernig getur yður dottið í hug, að ég sé reiður“. Þá fór hann út. „Hann segir mér eitt- hvað um tréskurðinn seinna, þeg- ar honum finnst tími til kominn", hugsaði ég. Og þar átti ég koll- gátuna, því að vissulega gerði hann það. Skipið, sem ég var á, var nú laust úr þurrkvínni, og átti að láta úr höfn daginn eftir. Þetta var síðasta nóttin mín í húsakynnum frú Southworth og ég var búinn að koma öllu dót- inu mínu niður í töskuna. Þá barði Downey að dyrum hjá mér. Þetta var í janúar og veðr- ið var kalt. Úti var úða-rigning. Vindurinn sletti öðru hvoru stór- um, kuldalegum dropumáglugg- ann minn, svo að buldi í, eins og hann væri að feykja skrælnuðu laufi. m. Ég opnaði dyrnar, og Down- ey kom inn. Ég starði á hann og undraðist breytinguna, sem orð- ið hafði á honum. Hann var hvatur í spori og augu hans Ijómuðu; og hann virtist hafa lagt frá sér Iífsleiðann, hungrið oí? örvæntinguna, eins og menn leggja frá sér flík, sem er orðin óhrein og slitin. 1 svip hans var léttlvndi op: föernuður. sem ég gat ekki skilið oí? hafði ekkibúiztvið. Þegar hann kom inn til mín, var

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.