Dvöl - 01.03.1937, Síða 27

Dvöl - 01.03.1937, Síða 27
 b v 6 L aður ókeypis. Hann skammaðist sin tynr totrana, sem Pann var 1, og þorði ekki að koma nærii, en stóð au’ðm.júkur og vandræða- iegur úti í horni. Hinir voru aiiir sómasamiega klæddir, kven- iíkin með skuplur og öll lögö borðum og kniplingum, embætc- ísmennirnir í einkennisbúningum, en órakaðir, iðnaðarmennirnir 1 sparikyrtlunum sínum. ,,Eins ogþérsjáið, Prokhoroí'í',i, sagði fylkisstjórinn í nafni hinna virðulegu gesta, ,,þá höfum við öll risið upp til þess að þiggja heimboð yðar. Þeir einir urðu eftir heima, sem ekki gátu kom- ið, sem voru allir komnir í smátt og hafa ekkert eftir nema hold- laus beinin. En jafnvel í þeirra hópi var einn, sem ekki hélzt við eftir þarna út frá — svo ákaft langaði hann að koma og sjá yður....“ I sama vetfangi kom í ljós lítil beinagrind, sem hafði olbogað sig gegnum þyrpinguna til Adri- ans. Holdlaust andlitið brosti vingjarnlega framan í líkkistu- smiðinn. Tætlur af grænu og rauðu klæði og fúnu lérefti héngu á henni hér og þar eins og á tjaldsúlu og fótabeinin skröltu innan í stóru leðurstíg- vélunum eins og bullur í strokk- um. ,,Þekkið þér mig ekki, Prok- horoff“, sagði beinagrindin. „Munið^þér ekki eftir gamla líf- varðarforingjanum, Peter Petro- vitch Kourilkin, sem þér selduð fyrstu líkkistuna yðar árið 1799, líkkistuna, sem var úr greni, en átti að vera úr eik?“ Þegar líkið hafði þetta mælt, rétti það fram berar, handleggs- pípurnar, en Adrian tók á öllu, sem hann átti til, æpti upp yfir sig og hrinti því frá sér. Peter Petrovitch riðaði, féll og fór i mola. Líkin gáfu frá sér hljóð, sem var þrungið reiði og ógnun; þau stóðu öll á fætur til heiðurs við hinn fallna félaga og sett- ust að Adrian með svo miklum bölbænum og hótunum, þrýstu svo fast að honum á alla vegu og æp.tu svo óstjórnlega i eyru hans, að veslings líkkistusmið- urinn missti smátt og smátt með- vitundina, þar til hann féll i ómegin og hneig niður á bein gamla lífvarðarforingjans. Sólin hafði skinið góða stund á rúmið, þar sem líkkistusmið- urinn lá. Loks opnaði hann aug- un og það fyrsta, sem hann sá, var vinnukonan að hita teket- ilinn. Með skelfingu rifjaði Ad- rian upp fyrir sér atburði liðins dags. Trukhina, fylkisstjórinn og lífvarðarforinginn Kourilkin, komu óljóst upp í huga hans. Hann sagði ekkert, en beið þess að vinnukonan tæki til máls, og skýrði honum frá því, sem gerzt hafði um nóttina. „Hvernig hafið þér sofið, kæri faðir Adrian Prokhorovitch?“ spurði Aksina og rétti honum

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.