Dvöl - 01.03.1937, Qupperneq 67

Dvöl - 01.03.1937, Qupperneq 67
D V 0 L 129 að hún var farin að ganga fjögur. Hann gat ekki náð í peningana í dag — það yrði búið að loka bank- anum, áður en hann kæmist þang- að. Litlu stúlkurnar tóku eftir svip hans og æptu hvor í kapp við aðra: „Húrra! Nú verðið þér líka að vera hér lengur!“ Ashurst svaraði engu. Aftur sá hann fyrir sér andlitið á Megan, þegar hann hvíslaði að henni við morgunverðarborðið: ,,Eg ætla að fara til Torquay, ástin mín, og ná í allt, sem við þurfum; ég kem aftur í kvöld. Ef gott verður veður, get- um við farið í nótt. Vertu tilbúin.“ Hann sá aftur fyrir sér, hvernig hún titraði og hlustaði áköf eftir orðum hans. Hvað skyldi hún halda? Svo áttaði hann sig allt í einu og tók eftir því, að hin stúlk- an, háa, ljóshærða stúlkan með Díönu-svipinn, sem stóð á bakk- anum, horfði einbeitt og rannsak- andi á hann; hann sá blá, spyrj- andi augu undir lítið eitt hallandi brúnum. Ef þau vissu, hvað hann var að hugsa um — ef þau vissu, að næstu nótt hafði hann ætlað —! Nú, þau myndu sjálfsagt láta í ljós viðbjóð sinn og svo yrði hann einn eftir í jarðhúsinu. I huga hans var emkennilegt sambland reiði, gremju og blygðunar, en hann stakk úrinu aftur í vasa sinn og sagði hvatlega: ,,Já, ég get ekki lokið mér af í dag.“ „Húrra! Nú getið þér komið með okkur í bað.“ Það var ómögulegt annað en slaka til fyrir ánægju litlu telpn- anna og brosinu á vörum Stellu. „Ágætt, gamli vinur,“ sagði Halli- day. „Ég skal sjá um gistingu handa þér í nótt.“ En aftur þyrmdi yfir Ashurst af þrá og samvizku- biti og hann sagði daufur í dálk- inn: „Ég verð að senda skeyti.“ Þau voru nú orðin leið á tjörn- inni og fóru heim í gistihúsið. — Ashurst sendi skeytið og stílaði það til frú Narracombe: „Get því miður ekki komið aftur fyr en á morgun.“ Auðvitað myndi Megan skilja það, að hann hefði ekki get- að lokið öllu, sem hann þurfti að gera; og honum létti um hjarta- rætur. Þetta var yndislegt kvöld, hlýtt, sjórinn var blár og sléttur, og sund var uppáhalds-íþróttin hans; honum þótti gaman að hafa unnið traust litlu telpnanna og hafði ánægju af að horfa á þær, og Stellu, og sólskinsandlitið á Halliday. Þetta var ekki alveg laust við að vera dálítið fjarri raunveruleikanum, en þó í sjálfu sér ákaflega eðlilegt — eins og þetta væri hið síðasta stundar- afturhvarf til venjulegs lífs, áður en hann legði út í æfintýrin með Megan við hlið sér. Hann fékk sér lánuð baðföt og svo lögðu þau öll af stað. Halliday og Ashurst af- klæddu sig bak við klett, systurn- ar bak við annan. Ashurst fór
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.