Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1888, Blaðsíða 38
38
II.
Kennaraskólarnir á Fiunlandi eru tvenns konar:
samansettir og aðskildir. Hinir samansettu liafa 2
deildir, eina fyrir karlmenn, aðra fyrir konur. í liverri
þessara deilda fyrir sig fer kennslan fram í sjerstökum
lierbergjum. Hinir aðskildu skólar eru stofnaðir, annaðhvort
eingöngu fyrir karla eða konur. Hinn sami kennslu-
grundvöllur gildir fyrir hvoratveggja skólana.
Kennaraskólarnir eru byggðir par, sem loptslag er
hollt og landið er fagurt með stöðuvötnum og skógi, og
•ætíð svo nálægt smábæ, að peir lærisveinar, sem ekki
búa á kennaraskólanum, geti hindrunarlaust búið í bæn-
um. Jyváskylákennaraskóli liggur í miðju landi, Sor-
davalakennaraskóli austur í landi, Nýkarlabæjarkennara-
skóli í vesturpartinum og Eykanesskennaraskóli suður í
landi, sá skóli stendur í beinu sambandi við höfuðstað-
inn Helsingjafoss, má fara par á milli á stuttum tíma
eptir járnbraut.
Yið hvern kennaraskóla, sem karlmenn eru á, er
plöntugarður ásamt með akri, engi og skógi.
Við hvern kennaraskóla er stofnaður barnaskóli eða
æfingarskóli, barnagarður og ungbarnastofa.
Á öllum kennaraskólunum er heimavist (Internat).
Á hinum samsettu kennaraskólum eru optast 45 heima-
sveinar og heimastúlkur jafnmargar, eru pví alls 90
heimavistir, en á liinum aðskildu kennaraskólum eru að
■eins 30 heimavistir; á peim eru peir af landsmöunum,
sem mæla á sænsku, en peir eru miklu færri en peir,
sem íinnsku mæla. Auk heimasveina og heimastúlkna
sækja kennaraskólann margir bæjarnemendur(Externer),
eru peir opt eins margir og lieimanemendur, og stund-
um fleiri. Loks eru nokkrir, sem sækja kennaraskól-
ana, sem að eins hlusta á kennsluna, en ekki eru spurðir
út úr kennslugreinunum, og álítast ekki fastir nemend-