Búnaðarrit - 01.01.1947, Blaðsíða 61
BÚNAÐARRIT
55
Yfirlitsskýrsla um starfsemina á SámsstöSum
1945 og 1946.
Veðurfarið 1945.
Veturinn. Janúar sá kaldasti, sem komið hefur i
mörg ár. Frá 1.—8. jan. var allhart frost og snjólcoma,
en nokkuð blotaði frá 9.—15. Það, sem eftir var mán.,
var hækkandi frost, en lítil snjókoma. Fremur vinda-
samt, svellalög og slæmt til beitar. Færi slæmt um
láglendi, en ófært á stundum yfir Hellisheiði.
Febrúar lilýrri, en þó að mörgu óhagstæður fénað-
arhöldum og samgöngum. 2 fyrstu dagar mán. voru
með allhörðu frosti, en frá 3.—21. þýðviðri en vinda-
samt i mesta lagi, einkum á austan og suðaustan. Eftir
22. febr. fór að snjóa og frjósa og hélzt það veðurfar
til mánaðarloka. Oft ófært yfir Hellisheiði með bif-
reiðum.
Marz sólarlítill, þykkskýjað og úrkomusamt i mesta
lagi. Frost fyrstu tvo daga mán., en svo þýðviðri a
daginn það sem eftir var mánaðarins. Fremur logn-
viðrasamt. Öllum útifénaði gefið, en þó nokkur beit,
því jörð var jafnan auð. Mánuðurinn fremur hag-
stæður landbúnaði.
Vorið (apríl—maí). Fremur þurrt, svalt og óhag-
stætt allri sprettu og fénaðarhöldum hvað heit snerti.
Apríl. Hlýindi i meðallagi frá 2. til 23., en þá gerði
kuldakast, er hélzt mánuðinn út. Jörð byrjaði að
grænka 5. apríl. Plógþýtt varð um 10. og korni fyrst
sáð 20. apríl. Gróðri fór hægt fram og kulnaði að mestu
út í kuldakasti því, er varð 23. apríl. Apríl var hag-
stæður flestum útiverkum, en beit ónóg vegna lítils
gróðurs.
Maí var sólríkur og í góðu meðallagi hlýr, en
óvenjulega þurrkasamur. Veðurhlíða oftast og aldrci