Búnaðarrit - 01.01.1947, Page 91
BÚNAÐARRIT
85
Sauðf j árræktarráðunauturinn.
Hrútasýningar. Haustið 1945 voru hrútasýningar
haldnar á Vestfjörðum, í Dalasýslu og í Snæfellnes-
og Hnappadalssýslu. Á þessu svæði átti að rétlu lagi
að halda hrútasýningar haustið 1944, en þá féllu þæv
niður sökum þess að ég dvaldi þá i Bandarílcjum N.-
Ameríku. Haustið 1946 voru hrútasýningar haldnar
á svæðinu frá Skeiðará austur og norður um land
að Hvalfirði, Snæfellsnesi og Dölum. Það svæði átti
að taka fyrir á tveimur árum, en með því að halda
sýningar á því öllu sama haustið, var sýningunum
komið í rétt lag aftur, þ. e. næsta haust fá Sunnlend-
ingar hrútasýningar eins og þeim ber. Haustið 1945
fór ég af stað í sýningarnar 17. sept. og kom úr þeim
23. okt. Þá mætti hr. Hjörtur Eldjárn fyrir Bf. ísl.
sem dómari á sýningum í ísafjarðarsýslum, í Barða-
strandarsýslu nema í Geiradal og í Árneshr. í Stranda-
sýslu. Hann var og með mér á nokkrum sýningum
í Strandasýslu til þess að æfa sig i að dæma hrútana
eftir sömu reglurn og ég gerði.
Haustið 1946 lagði ég af stað í hrútasýningarnar
17. sept., en kom úr því ferðalagi 2. nóv. Hjörtur Eld-
járn mætti sem dómari á sýningunum í Stöðvarhreppi,
Beruneshrepi)i, Geithellnahreppi og í öllum hreppum
A-Skaftafellssýslu, en Jón H. Þorbergsson bóndi á
Laxamýri dæmdi hrútana í Eyjafirði og Skagafirði.
Á öllum hinum sýningunum mætti ég sem dómari.
Skýrsla um hrútasýningarnar haustið 1945 er kom-
in út í Búnaðarritinu, 59. árg. 1946, en skýrsla um
sýningarnar haustið 1946 mun verða birt í næsta ár-
gangi þess.
Starf mitt á sýningunum er fyrst og fremst að mæla
og vega hrúta og dæma þá í flokka að því búnu. Enn
fremur að kenna viðstöddum, eftir því sem tök eru á,