Búnaðarrit - 01.01.1947, Page 107
BÚNAÐARRIT
101
þær eru gerðar ár eftir ár á injólk úr sönni kúnum,
gæti verið hægt að hafa til hliðsjónar og sjá eftir þeim,
hvort kýrin liefði feita, meðalfeita eða magra mjólk,
en varla meira.
Með þessi sjónarmið verða menn að lesa skýrslu
1, en hún er yfir þær 47 kýr, er fengu fyrstu verðlaun
á Vestfjörðum 1945. Af skýrslunni sést, hver á kúna,
hvernig hún er lit, hvað hún er gömul, liverjir eru
foreldrar hennar og hvernig hún hefur reynzt. Menn
munu strax taka eftir því, að viða eru eyður í slajrsl-
una. Allar stafa þær af því, að glompur eru í skýrslu-
haldið. Stundum geta þær verið eðlilegar, t. d. vöntun
á fæðingardegi á kú, sem keypt hefur verið frá ein-
hverjum, sem ekki er í nautgriparæktarfélagi, en oft
eru glompurnar einungis af gleymsku kýreigandans
að færa inn í skýrslubókina sína, eða eftirlitsmanns-
ins að færa úr bókinni á skýrsluformið, sem Búnaðar-
félagi fslands er sent. En á þessum takmörkuðu upp-
lýsingum þarf bæði nútíð og framtíð að byggja, þegar
velja á kynbótaskepnur og dæma um, bvernig þær eru
ættaðar.
Menn munu líka sjá, að þessar 47 kýr reynast ó-
bkt, enda er meðferðin á þeim misjöfn. En allar tel
ég þær góðar og sumar sérlega góðar, og undan þeim
öllum á að ala lífkálfa. Undan engri þeirra ætli að
úrepa lcvígukálf, og undan mörgum þeirra má gera
sér vonir um að fá góð naut.
Nautin, sem fengu fyrstu verðlaun á Vestfjörðum,
voru þessi:
1. Vestri, eign Nautgriparæktarfél. Mosvallabrepps,
rauður, hyrndur, f. 4. des. 1934 hjá önnu Torfadóttur,
bónda í Stakkadal á Rauðasandi. Móðir Vestra er
llumba 3 í Stakkadal, en faðir Rauður IV á Rauða-
sandi. Dumba 3 er undan Stjörnu 2 á Lambavatni og
Manna, en Rauður IV er undan Reyður 3 í Saurbæ og
Hnífli.