Búnaðarrit - 01.01.1947, Page 147
BÚNAÐARRIT
141
mjólkurmál og hjálpaði til við ýmis önnur störf fyrir
Búnaðarfélag íslands.
Árið 1946.
1. Stofnun mjólkurbúa.
Eins og getið er hér að framan, átti ég, síðari hluta
árs 1945, nokkra fundi með forráðamönnum Kaupfé-
lags Þingeyinga og Sláturfélags Austur-Húnvelninga.
Þessir fundir leiddu til þess, að mér var falið að und-
irbúa stofnun mjólkursamlaga í Húsavík og á Blöndu-
ósi. Gerði ég þegar teikningar af nýjum húsum og leit-
aði tilboða í vélar frá Danmörku og frá Svíþjóð. Þess-
um fyrsta undirbúningi var lokið fyrri hluta janúar,
og fór ég þá á stjórnarfund beggja aðila, og var þar
samþykkt að leggja málin fyrst fyrir hinar einstöku
deildir og síðan fyrir aðalfund.
Hlaut stofnun mjólkurbúa á þessum stöðum yfir-
gnæfandi meiri bluta atkvæða á aðalfundunum, og var
þá undirbúningnum haldið áfram. Fór ég utan, til
Norðurlanda, og gekk þaír frá kaupum á vélum í þessi
tvö mjólkurbú. Um sumarið var hafizt banda um bygg-
ingar, og eru þær vel á veg komnar og má þess vænta,
að bæði þessi bú geti tekið til starfa fyrri hluta sumars
1947.
Eru bæði þessi bú vel úr garði gerð með húsnæði og
vélakost, og eru miklar vonir héraðsmanna tengdar
])essum búum.
Búinu á Blönduósi er ætlað að framleiða smjör og
þurrmjólk, en auk þess eru tæki til gerilsneyðingar
á neyzlumjólk og til skyrgerðar. Húsavíkurbúið hefur
fullkomin tæki til smjörgerðar, ostagerðar, skyrgerðar
og tæki til gerilsneyðingar á neyzlumjólk og rjóma.
Hefur undirbúningur að stofnun ]>essara búa að
flestu bvílt i mínum höndum og tekið allmikinn tíina
af starfi mínu.