Búnaðarrit - 01.01.1947, Síða 181
BÚNAÐARRIT
175
laust til um það. Kaupgjald m. m. var ákveðið sem
áður er greint fyrir aðra útlendinga, og áskilið var,
að einhver kunnátta í ensku væri til staðar á heim-
ilinu. Undirtektir urðu þær, að 11 bændur og 2 út-
gerðarmenn báðu um 19 manns alls, en 7 af þeim
beiðnum voru í'ljótlega afturkallaðar.
Með bréfi dags. 28. júní tilkynnti ráðningastofan
bæði landbúnaðarráðuneytinu og utanrilcisráðuneyt-
inu árangur af útboðinu og óskaði þess, að liið síðar-
nefnda gerði ráðstafanir til — ef j>að féllist á að veita
atvinnu- og dvalarleyfi — að stúdentaráði háskóíans í
Edinborg yrði tilkynnt, að bingað mættu koma 20
skozkir stúdentar (afturkallanir voru ])á ekki komn-
ar) lil tveggja mánaða dvalar, enda kæmu þeir ekki
siðar en uin miðjan júlí. Þann 18. júlí berst ráðninga-
stofunni bréf utanríkisráðuneytisins, dags. 17. júlí, og
er jiar í símskeyti, dags. 12. júlí, frá ræðismanni Is-
lands í Edinborg, jiess efnis, að j)á sé ákveðið, að 10
stúdentar komi og fari sennilega í næstu viku — hin-
um l>yki orðið of áliðið. Endanleg niðurstaða í jjessu
máli varð sú, að á tímabilinu frá 22. júlí til 6. ágúst
komu hingað 9 skozkir stúdentar, og réðust 6 þeirra
í sveit, en þeir þrír, er síðast komu, vildu ekl<i ráðast
til sveitavinnu, og réðust jieir til Andakílsárvirkjunar-
innar í Borgarfirði.
Af jiví, sem bér hefur verið skýrt frá afskiptum
ráðningastofunnar af erlendu verkafólki og árangri
af þeiin, má glögglega sjá, að jiær vonir, sem stóðu
til að bægt yrði að veita bændum töluverða úrlausn
með ráðningu erlendra manna, urðu að þessu sinni
tálvonir að mestu, og mun verða svo eftirleiðis, ef til
nokkurs kemur í jiessu efni, nema málið verði skipu-
lega undirbúið í tæka tíð ár hvert. Eftir likum að dæma
eins og nú horfir um framboð og eftirspurn á vinnu-
markaði í nágrannalöndunum, er ekki við því að bú-
ast, að framboð verði á vinnuafli hingað, vegna at-