Morgunn - 01.06.1921, Blaðsíða 54
48
M 0 R G U N N
honum og kvað hann hafa verið einn bezta vin sinn og
hinn mesta ágætismann.
Vegna rúmleysis get eg ekki sagt frá fleiri dæmum af
fyrirbrigðum þessarar tegundar úr bókinni. En afskap-
lega þykja mér mörg þeirra merkileg.
Sjötti kaflinn er um npádóma. Af öllum náðargáfun-
um, sem Páll postuli talar um í fyrra Korinubréfinu, þyk-
ir honum spádómsgáfan mikilvægust. Þá náðargáfu átti
mr. Turvey í ríkum mæli, og lionum fanst hún undursam-
leg. Merkileg er lýsing hans af því, hvernig hann sá
fyrir óorðna hluti:
»Stundum sé eg eins konar ræmu (filrn) eða band, er
hreyfist í sifellu, eins og endalaust belti í kvikmynd. Þessi
ræma er með mjög Ijósrauðleitum fjólulit og hún virðist
sveifla8t með geysi-hraða. Á henni eru margar smámynd-
ir og virðast sumar þeirra grafnar á ræmuna sjálfa, en
aðrar eru líkar því sem Ijósbláar ljósmyndir væru límdar
á ræmuna. Hefi eg tekið eftir því, að hinar fyrnefndu
eiga við liðna atburði, en hinar siðarnefndu við ókomna.
Hvar atburðurinn hefir gerst eða gerist, verður að ráða
af landslagi og lofthita. Eg verð að ætlast á um tím-
ann af því, hve glöggar myndirnar eru«.
Hinn 18. mai 1902 fór mr. Turvey á heilsuhæli sér
til heilsubótar. I járnbrautarlestinni mætti hann mikils-
megandi blaðamanni, sem hann þekti og sagði við hann:
»Viljið þér fá tímanlega vísbending handa blaði yðar? Ef
það rætist, þá verður það stórfengur fyriryður*. Hann hló og
mælti: »Haldið áfram«, Eg svaraði: »Árið 1903 verður
England komið í bandalag við Japan, og 1904—5 mun
Japan eiga í ófriði við Rússland«.
Eins og menn muna, rættist þetta nákvæmlega. Hann
sagði og fyrir í júní 1904, hvernig því stríði mundi lykta,
svo og að friðarskilmálarnir af hendi Japana mundu verða
óvanalega vægir. Vottar einn af ritstjórum Englands
það í bréfi, prentuðu í bókinni, að sig hafi stórfurðað á
spádómi hans um hina vægu friðarkosti, en sá spádómur