Morgunn - 01.06.1921, Blaðsíða 86
80
MORGUNN
dansi, og fer um hann fremur háðulegum orðum. Hann
'miðar alt við Danmörk, bendir á, að þessi borðdans hafi
verið alltíður þar eftir miðja síðustu öld, en orðið að engu,
og auðvitað fari eins nú
»Menn geta litið á þetta sem saklaust gaman, sem
þeir ypta öxlum að. Og líka má líta á þetta sem órétt-
mætan ágang á ró framliðinna manna og á svið, sem við
höfum engan rétt til að koma á, og að spurningafýsnin
stjórnist eingöngu af óviðeigandi forvitni*.
En hvað sem þessu líður, fullyrðir þessi guðfræðingur,
að öllum geti komið saman um það, að »þessi ringluðu
fyrirbrigði« muni líð;> undir lok og verða að engu höfð.
»Sú trú, sem á að flytja mannslífið út yfir gröfina, er ekki
bundin við nein útvortis fyrirbrigði, sem gera. vart við sig
í borðfæti, heldur er hún lífsmagn, sem lifír í einstakling-
unum og flytur hverja kynslóðina lengra áfram og upp
á við«.
L. Á. T.
Svo nefnir sig einn af þessum spekingum, sern eru að
fræða Dani um spiritismann. Hann er að minsta kosti
kirkjulega innblásinn, ef hann er ekki prestur. Hann
finnur það aðallega að þessari breyfingu, að hún »nemi
helvítis-hugmyndina burt úr kiistinni trú gefi mönnunum
hér um bil jafn-lausan tauminn eins og spámennirnir frá
1870 (efnishyggjumennirnir), og búi til þægilega miðlun
milli himins og jarðar. í>ví að ef þeir liggja báðir til
himinB, breiði og þiöngi vegurinn, þá væri það yfirleitt
heimska að vera nokkuð að velja«.
Kristeligt Dagblad«
ritar um málið á þessa leið:
»Það er undarlegt, hvað spfritisminn blindar marga
menn um þessar mundir og gerir þá ringlaða
>Margir eru ofstækisfullir fylgismeim haus — enn
fleiri spyrja óttablendnir. Bei'sýhilega er þörf á að greitt
só úr málinu með gætni, bæði með vísindalegri rannsókn
á »fyrirbrigðunum« og með kristilegri virðingargerð.
»Slík virðingargerð er á dönsku í bók Skovgaard-
Petersens prests: »Kan der leves paa religiös Overtro?*
Oss er því Ijúft að mæla með þeirri bók; hún er sérstak-
lega hentug um þessar mundir til þess að leiðbeina mönn-
um i þessu efni«.