Morgunn - 01.06.1921, Blaðsíða 127
MORGU NN
121
flyttust frá manni til manns jafnvel úr mikilli fjarlægð.
Fyrirbriuði þetta væri á vísindamáli nefnt telepathy (fjar-
hrif). Sjálfur sasðist Sir Oliver Lodge hafa geflð sig við
þeim rannsóknum í nærri 40 ár, ásamt öðrum vísinda-
mönnum í Sálarrannsóknarfélaginu brezka. Hugskeyti
bærust manna milli borg úr borg og úr einu landi í ann-
að. Fyrst út frá því væri gengið, að andi mannsins
héldi sértilveru eftir dauðann, væri ekki ósennilegt, að
hugskeyti gæti borist frá einum huga til annars, enda
þótt annar væri fluttur úr líkamanum, þar sem sannað
væri, að hugir manna gæti fundist hér án likamlegra
skynjunarfæra Enda sagðist Sir 0. L. vita til þess, að
mörg slík hugskeyd hafi borist »handan að«.
í annan stað lýsti Sir 0 L. því, hvernig menn hér í
heimi skiftist á hugsunum með margskonar meðalfærum
(media), svo sem símfærum og sírnriturum. A sama hátt
notuðu andar framliðinna manna miðla til þess að koma
skeytum sinum hingað. Sagði hann langa sögu af rann-
sóknum sjálfs sín og annara á því sviði. Merkilegust var
frásögn hans um skeyti frá prófessor Myers, háskóla-
kennara við Oxforð, er andaðist árið 1901 á bezta aldri.
Hafði hann bundið það fastmælum, áður en hann dó, að
gera vart við sig handan að, ef þess væri kostur.
Sir Oliver Lodge varaði menn við því, að vera auð-
trúa á þessa fræði. Sagði, að margt væri villa tóm og
blekking. En hann bað menn hafa%pin augun fyrir því,
sem visindalega aannaðist í þessum efnum sem öðrum.
Um »andatní« er ekki að ræöa hjá Sir 0 L Kenningar
sínar boðar hann að eins sem vísindalegar staðreyndir. I
trúarefnum aðhyllist hann kenningar kristinnar kirkju. .
. . . Mór finst viturlegast að láta sáli'ræðinga og aðra
visindamenn eiga við þessi efni og bíða úrslitanna rólegir.
Vér kristnir menn höfum æðstar sannanir fyrir öðiu lifi
i kenningu Drottins vors og frelsara. I þeirri trú erum
vér sælir. En ekki þyrftum vér að a-mast við því, þó
svo færi, að visindin kæmist að þeirri niðurstöðu, að-
kristindómurinn væri sannur í þessu efui sem öðru.