Morgunn - 01.12.1924, Qupperneq 11
MORGUNN
121
æðri eiginleikar eru þegar farnir, svo að auSsjáanlega getur
liann ekki varist livötum, er liann fær við sefjun frá þeim,
sem kringum liann eru, eða þá frá sínum eigin eftirlöngun-
nm, sem nú er ekki taumhald á. Þá reka menn sig á það, að
miðlar hafa í frammi bjánalegt atferli, sem öllum er ber-
sýnilegt, atferli, sem setur þá í þá hættu, að svik verði borim
á þá. En ef maðurinn, sem athugar þetta, skiftir sér ekkert
af þessu og bíður, þá koma á eftir ósvikin sálræn fyrirbrigði,.
sem ekki verður vilst á, þegar miðillinn er kominn í dýpra sam-
bandsástand.
*Mér skilst svo, sem þessa hafi menn oröið varir hjá.
Eusapíu Paladino; en eg hefi séð það hjá ýmsum öðrum.
Þegar það hefir komið fyrir, að miöillinn hefir farið út úr-
byrginu, og menn komist að raun um, að hann er á reiki
meðal fundarmanna, eins og henti Mrs. Comer, Madame
d’Esperanee og Craddock — sem öll hafa margsinnis sannað
verulega miðilshæfileika sínn — þá er eg sannfærður um,
að sú ætlun, að þau liafi haft svik í frammi, er í raun og-
yeru hreinn misskilningur, þó að hún sé eðlileg.
Þegar menn að hinu leyti komast að því, að miðillinn:
hefir komiS með falsslæður eða vitorðsmenn, sem stundum
hefir komið fyrir, þá er það andstyggilegasti guðlasts-glæp-
urinn, sem nokkur maður getur drýgt.
Menn spyrja mig — og það er ekki óeðlilegt — hvaS það'
sé, sem hafi gert mig svona alsannfærðan um það, að þetta
sé satt. Til þess að sjá, að eg sé alsannfærður, þurfa menn
ekki annað en atliuga það, að eg hefi látið af starfi, sem var
mér viðfeldið og ábatasamt, yfirgefið heimili mitt um löng
tímabil, og gengist undir alls konar óþægindi og missi, til'
þess að boða mönnum þessar .sannreyndir.
Ætti eg að tilfæra allar ástæður mínar, yrði eg að rita-
heila bók fremur en tímaritsgrein, en í stuttu máli get eg sagt
það, að eg hefi ekkert skilningarvit, sem ekki hefir fengið'
vissuna tit af fyrir sig, og að ekki er til nein hugsanleg að-
ferð, er andar gætu beitt til þess að gera vart við sig, sem
eg hefi ekki margsinnis fengið reynslu um. í návist Miss Besin-