Morgunn - 01.12.1924, Side 46
156
MORGUNN
mun gera oss 'auðmjúlca og liógværa. Og það er eitt aðalskil-
yrðið fyrir sannri eining.
Nýlega hefi eg séð bók, sem rituS er fyrir skömmu af fá-
einum djúphyggjumönnum vorra tíma. Hún er um framtíff-
arríkið. Allir búast höfundarnir, sem lagt hafa saman í liana,
við geysibreytingum upp úr styrjöldinni miklu. Bin ritgerðin
er um kirkjuna í framtíðarríkinu. Höfundurinn bregSur upp
mynd af lienni, eins og hann hyggur, að hún muni verSa. Á
einum stað segir hann þetta:
„Trúarbrögðin eiga þá dýpri rætur í eilífum veruleik
manneðlisins en noklturu sinni fyr og veita mönnum þetta
hvorttveggja í einu: auðmýkt og áræði...Þeir finna til hins
■eilífa, sem er að baki alls hins tímanlega, og lifa í nánu sam-
félagi ekki að eins viiS Jesú og helga menn löngu liðinna tíma,
heldur og við þann Jesú og þá heilaga menn, sem hafa með
sams konar hreystilegri baráttu og þeirri, er fyrri tímar skýra
frá, áunnið sér það himnaríki, sem er svo nálægt oss. Þeir eru
fjarri því, aS neita lífinu eftir dauðann; þeir vænta einmitt
slíks lífs, og fyrir vináttu sína við þá, er þegar eru farnir
um dauðans hlið, hlakka þeir með fögnuði til þeirrar fram-
tíðar, sem bíður þeirra. Meðaumkuríarbros leikur um varir
þeirra, er þeir liugsa til hinna sjúku manna 20. aldarinnar,
sem ásökuðu kirkju sinnar tíðar fyrir að henni tækist ekki að
kveikja löngun til lífsins hjá mönnum, en höfðu sjálfir svo
litla ást á því, að þeir fögnuðu yfir því, aö þeir mundu slokkna
að fullu í dauðanum. En þegar lækningin kom, kviknaði aftur
hjá mönnunum löngun eftir eilífu lífi. Að vinna að heill mann-
kynsins ér ágætt, en því starfi eylcst kraftur og eldmóður, þeg-
ar almenningi er orðið ljóst, að þeir eru ekki að vinna fyrir
dægurflugur, er farast eiga eftir stutta stund, en helga sig
niannverum, sem eiga að lifa eilíflega og búa yfii' óendanleg-
um máttuleikum, sem ætlað er að vaxa út í óendanlegum ver-
öldum.“ —----- Rétt á eftir bætir höfundurinn þessu við: „Þeir
menn leysa samvizkuspurningar sínar með tilbeiðslu/‘
Ver skulum ekki vera kvíðafullir um hag framtíðarkirkj-