Morgunn - 01.12.1924, Qupperneq 75
MORGUNN
185-
suður í Laugarnesspítala. Eg afréð það, og sé eg ekki eftir því,.
að eg tók þann kostinn.
Blindöskubylur var, er eg fór úr Hvítársíðu. Þótti mjer
það gott, sökum þess að eg hafði miklar mætur á sveitinni,
þar sem svo margir höfðu verið mér góðir. Eg mundi hafa
tekið mér nær að skilja viS sveitina, ef veðurblíða hef ði gert
hana yndislegri í augum mínum, þegar eg kvaddi hana.
-----Hingað kom eg 19. nóv. 1901. Þegar eg liafði verið
hálfan mánuð, vildi svo til, að unglingspiltur kom og var
látinn í stofu, sem eg var í, en eg var fluttur úr þeirri stofu
og í aðra. Þetta varð til þess, að á mig sóttu afskapleg leið-
indi. Þótti mér lífiS verba mér ógurleg kvöl og vildi eg helzt
að því lyki sem fyrst. Eg neytti hvorki svefns né matar.
Þá var það eina nótt, a<5 eg sofnaði. Þótti mér þá sem eg
væri kominn í fagurt héraS og að stóru húsi. Þegar eg kom
þar að kúsdyrunum, þóttist eg gera boS fyrir Jóhannes skír-
ara, því að mér þótti, sem hann mundi eiga þar heima. Hann
kemur út og virtist mér hann fallegur maður. Spyr eg hann,.
hvort eg muni ekki fá að koma, því að eg segist ekki geta
lifað á jörðinni. Ilann segir, aS eg geti ekki fengiS að koma
enn. Kvaðst hann vita vel, livernig mér liSi, en að líðun mín
mundi bráðum batna. „Þú hafðir dálítið í hyggju, áður en
þú fórst á þennan stað, sem þú nú ert á. Og við vitum, að þú
munir liafa það enn í hyggju og þér mun verSa hjálpaS til
þess hér að ofan.“
Þóttist eg skilja, að lxann ætti við það, aS mig hafði
langað til að læra að lesa. Eg liafði ætlað mér að biðja
Halldór Ilelgason á ÁsbjarnarstöSum að segja mér til í lestri.
En það fórst vitanlega fyrir, þegar eg fór suður.
Eg hafði orð á þessu við kunningja mína á spítalanum.
Þeir reyndu mig nokkru eftir að mig dreymdi drauminn og
þeim leizt svo á, a'S eg mundi geta lært að lesa. Var þá feng-
inn maður til að segja mér eitthvað til. Ilann hét Þórarinn,
gamall maður. Sjón mín var ekki góð og var eg því sendur til
augnlæknis og hann lét mig liafa gleraugu, og gat eg þá
séð á bók. lteyndi eg fyrst að lesa Nýja testamentiS. Brá þá