Morgunn - 01.12.1924, Page 93
MORGUNN
203
leynda bragðaref, var jafnskjótt steinum varpað, og þaö svo.
barðlega, að sá hlaut meiðsli af, er fyrir varð.
Vinur minn, sem átti að vera þar viðstaddur af tilviljun,.
sagði mér alt þetta. Eg réð því af að fara þangað tafarlaust,.
í fylgd með S. vini míniun og konu einni, er eg nefni R., til
þess að rannsaka þetta dularfulla fyrirbrigði á sjálfum
staðnum.
Bærinn Rzeszów liggur miðja vegu milli Lemberg og'
Kraká. Við lögðum af stað frá Lemberg með járnbrautarlest-
inni hinn 17. nóvember 1922, á dagmálum, og komum til.
Rzeszów nær tveim stundum eftir liádegi. Við leigðum oklrur
léttivagn og ókum til Przybyszówka. Liggur þorpið eitthvað:
6 kílómetra frá Rzeszów. Er ekið beint eftir steinlagðri þjóð-
braut. Hús herra Christianis er hægra megin við brautina
og eitthvað hálfan kílómeter frá henni. Eg verð að bæta því
við, að þetta tignarfólk, Christiani-fjölskyldan, liafði búið í
sinni eigin höll fyrir stríðið — en meðan á stríðinu stóð,.
brendu Rússar heimili þeirra til öslm. Þau urðu því að leigja
sér annað liús. Það hús liggur inni á milli akranna og alls.
engin hús eru þar í grend; það stendur svo að segja aleitt
út af fyrir sig. Þegar við vorum komin þangað, kynti vin-
ur minn okkur fyrir Christiani-fólldnu og sagði frá því, í
hvaða erindum við værum komin. Við leiddum talið þegar
að vofunni. Þau Christiani-hjónin staðfestu alt, sem við höfð-
um heyrt, og bættu við enn fleiri smáatriðum, en það gerði'.
ekki annað en auka forvitni okkar.
Vér sitjum í vel lýstri stofunni og spjöllum kát um hitt
og þetta. Klukkan á veggnum slær sjö, og nærri því á sama:
augnabliki heyrum vér undarlegt ýskur, eins og þegar járn-
hlekkjum er núið saman. Samstundis sjáum vér í gluggan-
um hvíta kvenveru. Eg fer alveg að glugganum, og það svo
nærri honum, að andlit mitt kemur viö gluggarúðuna. Ung-
kvenvofa, meS dúk vafinn utan um höfuðið, hlær við oss og-
gerir ýmsar hreyfingar. Augun liggja djúpt í augnatóftun-
um; en þau ljnma - ^s ekki, eins og í lifandi konu. Ilún hlær'