Morgunn - 01.12.1937, Blaðsíða 76
202
MORGUNN
sönn og ekki þess verð, að skynsamt og hugsandi fólk
leggi trúnað á þau.
Hvort guðspjallasagan, eins og hún kemur fyrir, er
sannsöguleg eða ekki, — það kemur okkur ekki við, þó
að reynsla okkar bendi sterklega í þá átt; en það er
hlutverk okkar og einkanlega mitt, á þessu augnabliki,
að halda því fram, að samkvæmt langri reynslu, með
ströngustu varúðarreglum, sem vísindin geta bent á, er
ekki eitt einasta af þeim kraftaverkum, sem greint er
frá í biblíunni, þannig vaxið, að við höfum ekki margar
hliðstæður við það í sálrænum vísindum nú á dögum.
Þetta þýðir auðvitað það, að ef þið hafnið öllum krafta-
verkasögum biblíunnar, þá hafnið þið einnig ölluin hin-
um nákvæmu og alvarlegu tilraunum, sem gerðar hafa
verið í þessum efnum af sumum hinna vitrustu og áreið-
anlegustu karla og kvenna á vorum dögum.
En þetta þýðir einnig það, að ef þið takið gilda reynslu
sálarrannsóknamanna nú á tímum, þá eruð þið komnir
vel á veg með að taka gildar þær sögur í biblíunni, sem
eru að efni til hliðstæðar reynslu sálarrannsóknamann-
anna. Kraftaverkasögurnar í biblíunni og sögurnar um
dularfull fyrirbrigði nú á dögum, sem vottfestar eru af
áreiðanlegum og skynsömum mönnum, hljóta að standa
eða falla saman.
Kraftaverkin eða dularfullu fyrirbrigðin í ritningunni
og nú á tímum styðja annaðhvort hvað annað eða af-
sanna hvað annað. Ef guðspjallasagan og biblían yfir-
leitt getur stuðzt við nútímafyrirbrigðin, þá fær hún
öflugt líf og máttmikinn og gleðilegan veruleikablæ.
Það eru að vísu til, eins og við vitum öll helzt til vel,
mikil svik og margt ógeðfellt í sambandi við sálræn fyr-
irbrigði, en þessi fyrirbrigði, sem eru hliðstæð svonefnd-
um kraftaverkum í biblíunni, gerast þúsundum saman
mitt á meðal okkar nú á dögum, og það er ekki hægt að
losna við þau með því einu, að neita þeim. Hví þá ekki