Morgunn - 01.12.1937, Blaðsíða 74
200
MORGUNN
Þið minnið mig á Naaman. En ráðleggingin um lækn-
ingu Naamans kom, eins og þið munið, frá andaheim-
inum, og honum batnaði þá fyrst, þegar hann fór eftir
henni. Eg held því fram, að þið séuð að svíkja sjálfa
ykkur með því að álíta, að þið og kristindómurinn getið
komizt þægilega af án þessara atriða frá öðrum heimi,
sem hafa valdið ykkur vaxandi örðugleikum, — eða að
þessi kraftaverka-atriði hafi ekki, eins og þið segið,
áhrif á kjarna kristinnar trúar.
Nú getur verið, að þið sjálfir getið haldið í ykkar
kristnu trú án þessara atriða, kraftaverkanna, en ég
staðhæfi, að allur þorri þeirra manna, sem kristnir vilja
kallast, geti ekki játað kristna trú, þegar þessi atriði eru
burt numin. Þið eruð að bjóða þeim appelsínu, sem búið
er að sjúga allan safann úr.
Það er auðvelt fyrir ykkur að segja blátt áfram, að
þessi atriði hafi ekki áhrif á kjarna kristinnar trúar.
Þau voru upphaflega fyrir ykkur aðal-kjarni trúarinn-
ar, og þó að þið getið núna synt hjálparlaust, þá voru
þau sú leiðbeinandi hönd, sem gaf ykkur traust til að
læra að fljóta á djúpu vatni.
Vér verðum auðvitað að leggja nýja merkingu í orðið
„kraftaverk". Enginn trúir lengur á það, að almáttugur
guð hafi raskað sínum eigin lögmálum og hafi um stund-
arsakir, á takmörkuðu svæði eða fyrir sérstaldega út-
valið fólk, framkvæmt eða látið framkvæma verk, sem
voru þess eðlis, að þau höfðu aldrei komið fyrir áður og
gátu aldrei komið fyrir framar. Kirkjurnar eru að tæm-
ast af því, að þetta hefur verið kennt þar, og nú vonizt
þið frjálslyndu guðfræðingarnir til þess, að geta fyllt
þær aftur með einfaldri afneitun, með því að segja: „Þið
hafið rétt að mæla; þessi kraftaverk gerðust e k k i, —
það er allt vitleysa; okkur hefir slcjátlazt“. Síðan segið
þið: „En það gerir ekkert til; jafnvel þótt við tínum öll
kraftaverkin úr biblíunni, þá er nóg eftir. Jesús er eftir,
og hann er kristindómurinn".