Morgunn


Morgunn - 01.12.1937, Blaðsíða 110

Morgunn - 01.12.1937, Blaðsíða 110
236 MORGUNN „kerlingin“ eða „kerlingargreyið". Það liggur ekki hlýr hugur bak við slíkt orðaval. Eða var Solveig gömul? Engin einasta munnmælasaga, hvað þá ritaður annáll hermir svo. Þvert á móti á hún að hafa verið ung. Eru þá skoðanir manna um lífið eftir dauðann á þá lund, að ung stúlka, sem deyr á þessu ári, verði í öðrum heimi orðin kerling eftir eina til tvær aldir? Halda þeir menn, sem misst hafa unnustur sínar eða dætur á unga aldri, að þeir hitti þær sem kerlingar við endurfundina „annars heims“, ef endurfundirnir skyldu dragast svo sem hálfa öld? Ef þetta eru skoðanir manna um lífið eftir dauð- ann, hversu mjög þyrftu þær þá að breytast, og hversu geysilegt erindi á spiritisminn þá til þeirra manna! En þessu er varla svo farið. Hitt er ástæðan, að hugir margra eru smitaðir af gamla aldarandanum gagnvart Solveigu, þeim aldaranda, er þeir menn sköpuðu, er trúðu því, að hún hefði „gengið aftur“ og gert út af við séra Odd. — Og auðvitað er það ekki Solveig ein, sem orðið hefir fyrir barðinu á þessum gamla og síunga aldaranda. Því það er vísast mikill sannleikur í því sem eitt góðskáld hefir hugsað, en annað orðað svo: að — það sem dreymir fegurst og það sem brosir mildast, skal þrælslegast, trylldast í sorp verða troðið og saurgað í val. Og hvað hugsunina um Solveigu áhrærir, þá hefi ég orðið þess var, að það þarf þó nokkur átök til þess að uppræta með öllu þenna heimskulega og óbilgjarna hug. En hann þarf að upprætast. Ekki aðeins vegna Solveigar, heldur einnig og ekki síður vegna þeirra sem ala hann með sér. Vér þurfum að læra að finna það, að hver manneskja — líka sú, sem í raunir sjálfskapar- vítisins ratar — er bróðir vor eða systir. Vér þurfum að verða mann-vinir. Heimurinn kemst aldrei neitt áfram án kærleikans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.