Morgunn - 01.12.1937, Side 96
222
MORGUNN
lofað hvort öðru því, að hvort þeirra, sem fyr andaðist,
skyldi láta hitt vita um líðan sína eftir dauðann.
pt. Reykjavík, 29. sept. 1937.
Sveinbjörn Jónsson,
frá Skála undir Eyjafjöllum.
Ég undirritaður votta hér með, að framanskráður
draumur er hér að öllu leyti eins og frú Katrín Sigurð-
ardóttir sagði mér, áður en maður sá drukknaði, er hér
er getið. Mér er það mjög minnisstætt, að þegar ég, á-
samt öðrum manni fann liíkið nokkrum vikum síðar, þá
leit annar handleggur þess alveg eins út og frá er skýrt
í draumnum.
pt. Reykjavík, 29. sept. 1937.
Vigfús Ólafsson frá Lækjarbakka.
Bein Solveigar frá Miklabæ
skipta um verustaö.
Eftlr Lárus Arnórsson (piest að Miklabæ).
Ritstjóri Morguns hefir mælzt til þess, að eg ritaði
í tímaritið grein um flutning á beinum Solveigar frá
Miklabæ, er fór fram í sumar frá Miklabæ að Glaumbæ.
Mér er ánægja að verða við þeirri beiðni. Hvortveggja
er, að mér þykir ekkert að því að fá tækifæri til að
gera grein fyrir afskiptum mínum af þessu máli — af-
skiptum, sem eg þegar veit, að hafa hlotið ærið sundur-
leita dóma hjá þeim mönnum, er hafa látið sig þetta
mál nokkru skipta, — og að fulla nauðsyn ber til þess