Morgunn - 01.12.1937, Qupperneq 95
MORGUNN
221
þess í Vestmannaeyjum, það, sem hún næði. Þangað
hefi ég aldrei komið, og hafði því ekki hugmynd um
hvernig þar var umhorfs. Barnið, sem ég sá á eftir og
hélt að væri drengur, sagði hún að hlyti að vera Anna
litla leiksystir hans, sem líka átti heima í húsinu. En
þó sagðist hún ekki muna eftir því, að hún ætti svona
lita kápu.
Vottorð móður minnar, Þórhildar Einarsdóttur.
Ég undirrituð votta hér með, að framanskráður
draumur er eins hér og Katrín dóttir mín sagði mér
hann, þrem dögum eftir að Sigurður heitinn dó. Enn
fremur vil ég taka fram, að umhverfi hússins, sem ég
bý í á Vestmannabraut 58 B í Vestmannaeyjum, og Kat-
rín lýsir, er rétt eins og þá var. Leikvöllur barnanna,
Sigurðar og Önnu leiksystur hans, sem var á öðru ári,
þegar hann dó, var einmitt þar sem hún sá þau. Hafði
hann gaman af að klifra yfir girðinguna og komast inn
á túnið. Það hafði ég aldrei minnst á við Katrínu, eoa
lýst fyrir henni þessu umhverfi. Hún hefir ekki komið
til Vestmannaeyja. Seinna sagði ég Sigríði dóttur minni
frá þessu, og sagði hún, að Anna, leiksystir Sigurðar,
hefði átt dökkbláa kápu með þessu sniði, og að tölurnar
í brúna frakkanum, sem Sigurður sál. átti, hefðu verið
dálítið Ijósari en frakkinn. Þessu mundi ég ekki eftir.
Þórhildur Einarsdóttir.
Eftir að hafa heyrt þennan draum frú Katrínar Sig-
urðardóttur óska ég að taka þetta fram:
Mér er ánægja að votta það, að lýsing hennar á Gísla
heitnum og ástandi og umhverfi því, er hann fannst í, er
nákvæmlega rétt. Mér var einnig kunnugt um það, að
þau Þórný systir mín og Gísli heitinn frændi okkar höfðu