Morgunn - 01.12.1937, Blaðsíða 81
MORGUNN
207
utan kirknanna. Og ég eyði síðustu árum ævi minnar í
það, að reyna að fá kirkjuna til að taka aftur upp í kenn-
ingu og iðkun þessi tákn og stórmerki og lækningar, sem
Jesús fyrirleit ekki né neinn annar af hinum miklu trú-
arlegu leiðtogum heimsins.
Setjið aftur inn í kirkjurnar hinar dýrmætu náðargjaf-
ir hvítasunnunnar, og allir aðrir hlutir skulu veitast yð-
ur. Páll varar okkur við því, að fyrirlíta spádómsgáfuna,
sem var ein af náðargáfunum, og ég lýk máli mínu með
því, að minna ykkur á eitt orðtak ykkar, tilvitnunina í
vitringinn frá 16. öld, Erasmus frá Rotterdam. Hann
sagði, eins og þið munið: ,,Með því að telja hina nýju
þekkingu villutrú, gerið þið rétt-trúnaðinn að fáfræði".
Jakob Jóh. Smári íslenzkaði.
Bæn.
Morgunn hefir fengið eftirfarandi Ijóð frá manni, sem kunnugt.
er um, að fyrir fáum árum var mikill og ákveðinn efasemda-
maður. Lífsskoðun hans breyttist við það, að hann kyntist sálar-
rannsóknum og spíritismanum.
Friðarins Guð, ég leita þjáður þín,
þú ert mitt skjól, ó, líttu í náð til mín.
Stormana lægðu, lækna sviða-sárin,
sefaðu tárin.
Kraftarins Guð, ó, kraftinn send mér þinn;
krossinn er þungur, styð mig, faðir minn.
Frá þér er alt, minn friður, trú og vonin,
fyrir þinn Soninn.