Morgunn - 01.12.1954, Qupperneq 5
MORGUNN
83
sjá en að norrænir spíritistar væru alvarlega trúaðir menn.
Mesta athygli á þessum morgunstundum vakti ávarp, sem
fyrrverandi forsetafrú Finna, Gerda Ryti, flutti. Hún
M var forsetafrú landsins meðan mestu hörm-
guðr kní un8'arnar dundu á Finnum í síðustu styrjöld,
og var mál hennar elskulegur vitnisburður
þess, hve þessi göfuga kona hefur í ríkum mæli tileinkað
sér kenningu hins spíritistíska kristindóms um þjáning-
una og markmið hennar. En sjálf báru þau forsetahjónin
á erfiðustu augnablikunum harma og þjáning heillar þjóð-
ar. Forsetafrúin minntist með þakklæti, eins og fleiri Finn-
ar, þeirrar hjálpar, sem Islendingar hefðu sent Finnum
eftir styrjöldina.
Mikil alúð var við það lögð af hálfu Finna, að gera gest-
unum dvölina í höfuðborg þeirra sem unaðslegasta. Hels-
ingfors er fögur borg og umhverfi hennar er víða dásam-
u lega fagurt, þótt fjöllin vanti. Var gest-
eyrt og *e . unum sýnt og allvíða með þá farið
í stuttar ferðir. Og í borginni sjálfri var margt að sjá og
merkilegt. Endurreisnarstarfið eftir styrjöldina er eins
og ævintýr í augum ferðamannsins. Stórir borgarhlutar
hafa verið byggðir upp af frábærum myndarskap og stór-
hug, stórkostlegar íbúðabyggingar, barnaheimili, sjúkra-
hús og líknarstofnanir. Er ferðamanninum lítt skiljan-
legt, hvílík afrek hafa verið unnið á fáum árum. Og þrátt
fyrir allar hörmungar er fólkið frjálslegt og glaðlegt, þetta
fólk, sem þrælaði undir risavöxnum stríðsskuldum, sem
því var gert að greiða. Og blóðtakan á mannslífum var svo
ægileg, að af þessari fámennu þjóð létu um 250 þúsundir
lífið, að því er okkur var sagt. Við Islendingarnir kvödd-
um Finnana með virðingu, og við finnum okkur auðugri
af kynnunum, þótt stutt væru, af þessari hugprúðu og
ágætu þjóð. En ég hygg, að við höfum margsinnis spurt
okkur sjálf þessa daga í Finnlandi: Mundum við Islend-
ingar standast slíka raun jafn stórmannlega?
Spíritisminn barst til Finnlands nokkuru fyrir aldamót-