Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Side 25

Morgunn - 01.12.1954, Side 25
MORGUNN 103 um skeið prestsþjónustu fyrir fríkirkjusöfnuðinn þar. Prédikunarstarfi hans kunnu menn ágætlega. Hugsunin var ljós, vandvirknin var mikil og snemma bar á því, að hann fór hiklaust sínar eigin götur. Þótt hann hefði ekki aðra skólamenntun en þá, sem hann hlaut í Kennaraskól- anum, var hann furðuvel að sér um guðfræðileg efni, enda var hann jafnan sílesandi, er tóm gafst til frá skyldustörf- unum. Einar Loftsson hafði snemma fengið hinar mestu mæt- ur á brautryðjendastarfi þeirra Einars H. Kvarans og próf. Haralds Níelssonar, en á Austfjarðaárunum bar fundum hans saman við Sigurð Kvaran, sem þá var hér- aðslæknir eystra, og batt við hann vináttu. Þeir áttu sálu- félag um sálarrannsóknamálið, lásu, ræddu saman og gerðu sjálfir athyglisverðar sálrænar tilraunir. En í þá átt hafði Einar Loftsson nokkurn hæfileika sjálfur. Fyrir um það bil aldarfjórðungi fluttist hann alkominn hingað til Reykjavíkur, og skömmu síðar batt hann vin- áttu við Einar H. Kvaran og konu hans. „Eftir það byrj- aði ég raunverulega fyrst að lifa“, sagði hann síðar. I húsi þeirra hjóna bjó hann síðan til æviloka þeirra og eftir það, unz hann fluttist í hús S.R.F.l. við Öldugötu 13 fyrir rúmu ári. Heimili þeirra Kvaranshjónanna varð honum meira virði en nokkurt annað heimili fyrr og síðar. Þar fékk hann að eiga sálufélag við gáfað og fjölmenntað fólk. Þar var bókakostur góður um þau mál, sem honum voru hug- leiknust, og það andrúmsloft víðsýnis og mennta, sem þau hjónin voru samhent um að fylla heimili sitt af, varð hon- um uppspretta mikillar gleði. Hver hamingja þetta varð Einari Loftssyni, skilja allir, sem þekktu hann og þekktu hið frábæra heimili frú Gíslínu og Einars Kvarans. Sálarrannsóknirnar urðu Einari Loftssyni það mál, sem hann unni mest og helgaði starfskraftana mesta, auk kennslustarfsins. Hann varð ágætlega að sér í bókmennt- um sálarrannsóknanna og spíritismans, og síðustu árin

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.