Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Side 29

Morgunn - 01.12.1954, Side 29
M 0 R G U N N 107 rósömu brosi, þótt ekki gæti hann lengur talað, svo að skiljanlegt væri. Banastríð hans varð strangt. Dauðinn lagði hendur yfir helsjúkt höfuð hans, en í hjartanu bjó vorið, sem enginn dauði getur grandað. Og nú, þegar austrið eilífa hefur opn- að honum faðminn og fjöturinn þungi er fallinn, horfum vér eftir góðum manni og merkum ganga áleiðis til „lífs- ins fjalla“. Jón Auðuns. ★ Skáldið Gerald Massey sótti efnið í hina frægu Ijóðabók sína, A Tale of Eternity, í sálræn fyrirbrigði, sem hann hafði sannreynt sjálfur. Þegar það vitnaðist, að hann væri orðinn spíritisti, snéru margir fyrri aðdáenda hans við honum baki. Þetta var fyrir síðustu aldamót. En þá birti hann þessa yfirlýsing: „Sannleikans vegna hlýt ég að lýsa yfir því, að spíritismann, sem íinnast kann í skáldskap mínum, hef ég ekki fengið frá neinum hug- smíðum og ekki heldur frá neinni erfðatrú á upprisu dauðra. Trú mín á ódauðleikann er byggð á staðreyndum, sem ég hef sjálfur geng- ið úr skugga um og sannreynt persónulega. Þessar staðreyndir hafa verið mér meira og minna kunnar í fjörutíu ár. Þess vegna er sann- færing mín ekki ótímabær. Þessar staðreyndir hafa gefið mér sönn- un þess, að vera okkar og vitsmunir halda áfram að vera til og lifa eftir að rökkurtjaldið er dregið niður í dauðanum“.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.