Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Side 43

Morgunn - 01.12.1954, Side 43
MOEGUNN 121 séð kyrkislöngu kremja bráð sína til dauða, getur máske gert sér í hugarlund þær ofsalegu þjáningar og angist, sem slík pyndingaraðferð olli. Svo fast var spennitreyjan reyrð að líkama Ed. Morrells, að við lá, að segldúkurinn myndi rifna við átökin. í hálfa klukkustund barðist hjarta hans með tryllingslegum ofsa, og honum virtist sem hálstaugarnar myndu þá og þegar slitna. Honum var að verða ókleiít að draga andann. Það var eins og eldur brynni úr augum hans, og hann sá nú ekki annað orðið en eldblossa, sem leiftruðu án afláts fyrir augum hans. Honum fannst hann vera að kafna. En — þá fann hann undarlega ró færast yfir líkama sinn. Hann skynjaði sársaukann ekki lengur. Hann gerði sér nú fulla grein fyrir því, að sál hans hafði losað sig úr tengslum við jarðneskan líkama hans. Hann skynjaði nú tíma og rúm með allt öðrum hætti, skynsvið hans hafði víkkað. Veggir fangaklefans virtust f jarlægjast og leysast upp og á næsta augnabliki vissi hann sig lcominn út fyrir veggi fangelsisins, og nú reikaði hann um úti í guðs grænni báttúrunni. Hann var frjáls — frjáls. Bæði þá og síðar, er honum virtist sál sín yfirgefa jarðneskan líkama hans og reika um í nýjum líkama, sjálf- stæð og frjáls, bar margt fyrir augu og eyru Morrell’s. Síðar lýsti hann mörgu af því, er hann hafði skynjað og greint í þessu ástandi, og sannanlegt var, að viðburðir Þoir, sem hann hafði séð, höfðu í raun og veru gerzt. Hann sá skip stranda í höfninni meðal annars, og þetta hafði gerzt nákvæmlega með sama hætti og á sama tíma og hann sagði til um. Eitt er víst, að vitneskja um þetta gat ekki borizt til hans með venjulegum hætti, eins og högum hans var háttað. Hann sá og hitti meðal annars menn, sem hann kynntist síðar á lífsleiðinni, meðal annarra stúlku þá, er síðar varð eiginkona hans. Þá hitti hann og landstjórann, °g meðal annars sagði hann nákvæmlega fyrir dag þann, er hann myndi öðlast frelsi sitt. Sál hans virtist nú starfa

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.