Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Page 47

Morgunn - 01.12.1954, Page 47
Kirkjudeilan norska. ★ Kirkjudeilan norska, sem áður hefur verið getið í MORGNI, hefur vakið athygli víða um lönd. Og einnig hefur vakið athygli víða skattsvikamál hins fræga, norska trúmálaleiðtoga og vítis-prédikara, próf. Hallesbys, sem varð til þess, að hann varð að segja af sér forsetastörfum í norska heimatrúboðssambandinu. Hann hefur síðan haft miklum mun hægara um sig en áður. í ameríska tímarit- inu AWAKE!, 22. júní 1954, birtist þessi grein, sem les- endum MORGUNS kann að þykja fróðleg: -----Helvíti. Er það til, eða er það ekki til? Er það raunverulegur angistar- og kvalastaður framliðinna manna, eða er það stórkostleg lygi, sem egypzkir prestar notuðu og ofsatrúarmenn nota enn í dag? Og á að nota ríkisútvarp til að breiða út kenninguna um eldsvítið, eða ekki? Þessum spurningum hafa menn velt fyrir sér í norsku blöðunum, meðal presta og leikmanna. Einn biskupinn hefur verið „rannsakaður“ og „sýknaður“, vegna skoðana sinna á þessu máli, og þessar deilur hafa stórlega veikt aðstöðu norsku kirkjunnar, og það svo mjög, að í herbúð- um beggja deiluaðila hefur verið talað um að slíta sam- bandi ríkis og kirkju, eftir að norska kirkjan er búin að vera í sterku sambandi við ríkið í 900 ár. Þetta hófst með því að norskum útvarpshlustendum rann ískalt vatn milli skinns og hörunds, er þeir heyrðu hina hvellu og óþægilegu rödd hins 74 ára gamla guðfræði- prófessors, Ole Hallesbys, þruma í útvarpinu: „Hvernig getið þið óendurfæddir menn gengið rólega til hvílu að kveldi, þið, sem vitið ekki, hvort heldur þið vaknið í rúmi

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.