Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Side 61

Morgunn - 01.12.1954, Side 61
MORGUNN 139 hæfileiki mannsins til að gera sér hugmyndir um annað líf benda til þess, að annað líf muni vera til. Getum vér hugsað oss, að þetta furðulega fyrirbæri nátt- úrunnar, sem vér nefnum mann, geti ein lífvera, sem er svo lítil, að milljón þeirra má koma fyrir á einum títu- prjónshausi, þurrkað gersamlega út úr tilverunni? Hugsum okkur mikinn fiðluleikara, sem er mállaus. Hugsum okkur, að hann geti hvorki talað með orðum eða merkjum, aðeins leikið á fiðluna sína. Fiðlan er eina tæk- ið hans til að tjá sig fyrir öðrum mönnum. Nú skulum við hugsa okkur, að fiðlan merki mannslíkamann með heilan- um, en listamaðurinn merki sálina. Þá skilur þú, hvað heimspekingurinn forni átti við, þegar hann sagði: „Það er ekki rétt, að maðurinn sé líkami, sem hafi sál. Hitt er rétt að segja, að hann sé sál, sem hafi líkama“. í jarðlíf- inu erum við líkir listamanninum, sem er með fiðluna sína. Líkaminn er eina tækið okkar til að tjá okkur fyrir öðrum mönnum, að fráskildum fjarhrifunum, telepatíunni, sem við skulum sleppa í bili að gera ráð fyrir. Til þess að tjá mig fyrir öðrum manni verð ég að nota vissa hluta líkam- ans, hönd mína, raddböndin, augun o. s. frv. En nú skulum við gera ráð fyrir að einhver komi og eyðileggi fiðluna fyrir listamanninum. Er nokkur ástæða H1 að ætla, að listamaðurinn sjálfur eyðileggist af því? Er nokkur ástæða til að ætla, að hann geti ekki fengið sér nðra fiðlu til að leika á? Er þá nokkuru fremur ástæða til að efa, að maðurinn geti fengið einhver önnur tæki til að tjá sig með, þegar líkami hans er eyðilagður? Og við skulum halda samlíkingunni áfram: Þótt fiðlan sé eyðilögð, svo að engin hljóð fáist úr henni önnur en amátleg tíst, er listamaðurinn sjálfur hinn sami og fyrr. Er því ekki á þenna hátt farið um menn, sem þjást af sál- sýki? Þeir hafa misst tækið til að tjá sig okkur hinum á venjulegan hátt, en sjálfir eru þeir alls ekki vitlausir. Annað tveggja hafa þeir tekið að erfðum skemmda fiðlu

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.