Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Page 3

Morgunn - 01.12.1956, Page 3
Úr ýmsum áttum. Eftir ritstj. ★ Með mikilli athygli fylgdist allur þorri þjóðarinnar með Skálholtshátíðinni á liðnu sumri, og munu flestir sammála um, að hún hafi orðið til sóma kirkju Islands og raunar Níu alda Þjóðinni allri. Og þær ályktanir mun mega draga af ummælum ýmissa forystumanna mmning. þjóðarinnar, að í hugum manna á íslandi muni kirkjan eiga rík ítök. Post Festum — þegar hátíðinni var lokið, heyrðust þó nokkrar hjáróma raddir, einkum í sam- bandi við þann misskilning, að biskupi rómversku kirkj- unnar á íslandi hefði ekki verið boðið til hátíðarinnar. Raunar var það upplýst þá þegar, að þessum virðulega fulltrtúa páfans hefði verið boðið, en hann hefði ekki séð sér fært að þiggja það boð, úr því að honum og klerkum bans var ekki boðið að annast einhvern hluta hátíðarhalds- ins í Skálholti. Nú var hátíðin vitanlega hátíð þjóðkirkju íslands, hátíð íslenzku kirkjunnar, sem ríkið er skuld- bundið til að vernda og styðja samkvæmt stjórnarskránni. Samt virðast hinir virðulegu forystumenn örlitla róm- verska safnaðarins í Reykjavík hafa ætlazt til þess, að slíkra réttinda fengju þeir að njóta í lútersku landi. Enginn sæmilegur maður vill njóta þeirra réttinda hjá öðrum, sem hann er ekki fús á að láta þeim í té. Hver réttindi lætur rómverska kirkjan mótmælendum í té í lönd- Urn, þar sem hún fær að vera einráð? Nokkuru síðar en herra biskupinn í Landakoti kvartaði yfir því í viðtali í hforgunblaðinu, að honum og klerkum hans hefði ekki

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.