Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Page 15

Morgunn - 01.12.1956, Page 15
Frú Jean Thompson: Úr sálrænni reynslu minni Eins og mörgum lesendum MORGUNS mun kunnugt, var skozki miðillinn frú Jean Thompson gestur Sálarrannsókna- félags Islands um mánaðartíma á liðnu hausti. Á vegum fé- lagsins hélt hún fjölda af einkafundum og nokkra skyggni- fundi fyrir 80 manns í einu í hinum nýju húsakynnum félags- ins að Garðastræti 8, Reykjavík. Á svo fjölmennum félags- fundi, sem Sjálfstæðishúsið í Reykjavík rúmaði, flutti hún frásagnir þær úr eigin reynslu sinni, sem hér fara á eftir. Að loknu erindinu gaf frúin skyggnilýsingar. Erindi sitt hafði frúin ekki skrifað, kann því einhverju að skeika í frásögn- inni, en væntanlega ekki í aðalatriðum. — Ritstj. ★ Ég- man naumast til mín fyrr en ég skynjaði það, sem flestum öðrum var hulið, og undraði það mig mest, að ekki skyldu allir sjá og heyra það, sem ég sá og heyrði. Þó var rnóðir mín miðill, ágætur miðill, og systir mín gædd sál- rænum hæfileikum. I æskuheimilinu mínu í Skotlandi höfð- um við „hring“ til sálrænna tilrauna. Við heyrðum „bein- Ui' raddir“, talað í tilraunaherberginu án þess mannleg talfseri væru að verki. Eftir að við börnin vorum uppkom- ih, tvístraðist hópurinn. En þegar tækifæri gafst til þess að við gætum öll verið saman, mynduðum við tilraunahring keima hjá móður minni, og þá heyrðum við að jafnaði gömlu raddirnar okkar aftur. Faðir móður minnar var sveitaprestur í Skotlandi. Hann dó heima hjá sér, allfjarri heimili okkar. Þó sá ég hann, alveg óvænt, heima hjá okkur, áður en dánarfregnin barst Uúóður minni. Þegar ég var níu ára gömul, sá ég svip frænku minnar, sem átti heima á öðrum stað en við í Skotlandi. Þetta gerðist kl. tuttugu mínútum fyrir níu að kvöldi, og við böi-nin vorum að búa okkur til svefns. Við höfðum enga

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.