Morgunn - 01.12.1956, Side 63
MORGUNN
141
hafa fundið upp, er ekki til fyrir hinni vitru, hreinu og
sannleikselskandi sál.
Á slíka sál hefir hið illa engin áhrif. Andstæðingarnir
hörfa úr návist hennar, herskarar vonzkunnar hafa ekkert
vald yfir henni. Englar vernda hana, ljósenglar þjóna
henni og leiða þróun hennar. Hennar bíður braut stöð-
ugrar þróunar og vaxtar í öllu því, sem lyftir skilningnum
°g göfgar hann. Hún þarf engan Satan að óttast, ef hún
skapar sér hann ekki sjálf. Þrá hennar eftir hinu góða,
laðar að henni hin hreinu öfl. Hún er umkringd vernd-
andi öflum. Hún er ekki leyst undan valdi freistinganna,
sem búa í umhverfi hennar, meðan hún lifir þennan
veynslutíma. Hin dimmu ský sorgar og sálarangistar geta
hlaðizt að henni, hún getur þjóðst af meðvitundinni um
þá synd og eymd, sem hún er umkringd af, en enginn
ímyndaður Satan hefir vald yfir henni. öll snerting henn-
ar við sorgir, þjáningar og afbrot er aðeins einn þáttur
þeirrar miklu reynslu, sem síðan á að hefja hana hærra
Upp. Með því að láta sálina komast í kynni við þet.ta allt,
auðga verndarenglarnir hana að dýrmætri reynslu, en
Varðveita hana samtímis frá valdi óvinarins.
Aðeins þeir menn, sem vegna vanþroska síns elska hið
hla, draga að sér skylda, óþroskaða anda, sem eru farnir
úr líkamanum en hafa ekki enn gleymt girndum sínum og
ástríðum, aðeins þessum mönnum er búin hætta af árás-
um hins illa. Þeir draga að sér þá lágu anda, sem sveima
uæst jörðunni og grípa fúslega hvert tækifæri til að grípa
fram fyrir hendur okkar og eyðileggja þau áhrif, sem við
reynum að hafa. Við þessa menn átt þú, þegar þú talar
um, að spíritisminn geti haft ill áhrif. Þér skjátlast, vinur
minn. Liggðu okkur ekki á hálsi fyrir það, að lágir andar
vitja þeirra jarðneskra manna, sem bjóða þeim til sín.
Ég segi þér meira síðar. Ég hefi nú þegar sagt meira
en ætlun okkar var.
Vitsmunaveran, sem tjáði sig standa á bak við
þessar orðsendingar og stýra hendi St. Mosesar,