Morgunn - 01.12.1956, Blaðsíða 79
MORGUNN
157
staðhæfingu telpunnar, varð hún sárgröm, stappaði fætin-
um í gólfið og kallaði: „Það er satt, það er satt, það er
satt. Einu sinni var ég karlmaður og fór þá til Kanada.
Ég man líka, hvað ég hét þá. Ég hét Lissús Faber, og það
var ég, sem tók borgarhliðin".
Þetta kynlega mál var athugað betur, og eftir nokkurra
mánaða leit fann sagnfræðingur nokkur heimildir þess, að
í orustu í Kanada hafði einn maður tekið borgarhliðin,
liðsforingi að nafni Alyosíus La Febre. En barnið bar
nafnið fram sem Líssús Faber.
Einnig var mjög dularfullt það, sem fyrir kom með
indverskan dreng, Vishwa Nath að nafni. Hann var fædd-
ur í Barilli í Indlandi, og þegar hann var þriggja ára gam-
all, tók hann að segja nákvæmlega og í einstökum smá-
atriðum frá fyrri jarðvist, sem hann kvaðst hafa lifað í
borginni Pililbhit. Hvernig sem á því stendur héldu for-
eldrar hans, að þetta kynlega fyrirbæri boðaði feigð barns-
ins, og reyndu þessvegna að halda þessu leyndu.
Drengurinn nefndi skólann, sem hann kvaðst hafa geng-
ið í í fyrri jarðvist sinni í Pililbhit, og hann sagði frá
nágranna þar, sem átt hefði grænt hlið, sverð og byssu,
og að nágranninn hefði heitið Lala Sundar Dal.
Til þess að reyna að ganga úr skugga um, hvort frá-
sagnir drengsins væru réttar, var farið með hann til
Pililbhit. Hann hafði aldrei komið þangað áður, og leiðin
þangað var löng. Þegar þangað var komið, benti hann ná-
kvæmlega á fyrra heimili sitt þar,, sem nú var í rústum,
og hann sagði til stiga nokkurs, sem var algerlega hulinn,
en fannst við nánari athugun. Honum var sýnd hópmynd
af nokkrum manneskjum, og benti óðara á einn manninn
á myndinni og sagði að hann hafi verið frændi sinn, hefði
heitið Har Nerai, og hann benti á sjálfan sig sem lítið
barn á myndinni.
Allt, sem þriggja ára barnið sagði um þetta fólk, reynd-
ist við nánari eftirgrennslan rétt. Maðurinn, sem hann