Morgunn - 01.12.1956, Side 54
132
MORGUNN
tíð. Þetta varð afdrifaríkt fyrir hinn unga og gáfaða
prest, því að dr. Speer og kona hans voru mjög áhuga-
söm um sálarrannsóknir og spíritisma, en ævilanga vin-
áttu batt Stainton Moses við þessi merku hjón. Laust upp
úr 1870 var hann kallaður til starfa við Lundúnaháskóla,
en sagði af sér starfi sextugur að aldri, vegna sjúkleika,
og andaðist þrem árum síðar.
Um það leyti, sem Stainton Moses kom að Lundúnahá-
skóla, og þó raunar fyrr, fór að bera á sálrænum gáfum
hjá honum, og náðu þær miklum þroska. Miðiliskraftur
hans varð geysimikill, svo að allt var bókstaflega stund-
um á ferð og flugi í kring um hann, meðan hann var í
transi, og margskonar stórfelld fyrirbrigði gerðust. Hann
kynntist flestum hinna miklu miðla, sem þá voru uppi,
vann með þeim og kom mjög við sögu sálarrannsóknanna
og spíritismans á síðustu áratugum 19. aldarinnar. Um
alllangt skeið var hann formaður Spíritistasambands
Lundúna og ritstjóri tímaritsins Light. 1 flestum hinna
merkari bóka um sálræn efni frá þeim tímum, er hans
getið, og jafnan með mikilli virðingu.
Víðkunnastur varð hann fyrir bækur þær, er hann reit
ósjálfrátt, og þó einkum fyrir bókina Kenningar Andanna
(Spirit Teachings). Vitsmunaverur þær, er töldust standa
á bak við þessi skrif hans og stjórna hendi hans, tjáðu
sig hafa lifað fyrir ævalöngu á jörðunni, og erfitt eða
ógerlegt hefir reynzt að færa nokkrar sönnur á, hverjar
þessar verur í rauninni voru, en víst er það, að skoðanir
þeirra brutu lengi vel mjög í bága við skoðanir St. Mo-
sesar sjálfs. Með miklum hraða ritaði hönd hans, án þess
hann fengi við það ráðið sjálfur, og alltaf var hann að
grípa fram í til að andmæla þeim skoðunum, sem settar
voru fram á blöðunum með eigin hendi hans. Þessar ósýni-
legu vitsmunaverur, hverjar sem þær kunna að hafa verið,
héldu fast á sínu máli og skiptu ekki um skoðun við and-
mæli og gagnrýni St. Mosesar, en skoðanir sjálfs hans
tóku miklum breytingum, smám saman.