Morgunn - 01.12.1956, Qupperneq 71
MORGUNN
149
menna athygli. Ungur maður, fyrrv. liðsforingi í brezka
sjóhernum, er sagður hafa endurlifað undir dáleiðslu-
áhrifum fyrra líf sitt fyrir 150 árum. Amerísk húsfreyja
er sögð hafa lýst fyrri fjarvist sinni á Irlandi fyrir 100—
150 árum, einnig undir dáleiðsluáhrifum.
Frá fyrra atriðinu segir John Prebble í stórblaðinu
Sunday Graphic,, en hann hefir verið að rannsaka þessi
efni í 7 mánuði samfleytt. Hann segir, að læknir nokkur
hafi dáleitt ungan mann. Þegar ungi maðurinn var orð-
inn dáleiddur, lét læknirinn hann rekja líf sitt aftur að
fæðingu, og bauð honum þvínæst að hverfa 150 ár aftur
í tímann.
Læknirinn spurði, hvað hann héti nú, og hann svaraði
óðara: Matthew Jordan, — sem er alls ólíkt nafni því,
sem ungi maðurinn ber nú. Þá var hann spurður, hvar
hann væri nú staddur, og óðara sagðist hann vera í hest-
húsi með börnum sínum. Hann talaði um að þau væru
svöng, en þó hefði þeim verið gefinn nýr fiskur að borða.
Hann kvað hesthúsið vera í Poplar, og að þar hefði hann,
Matthew Jordan, unnið á búgarði, sem maður að nafni
Kemp hefði verið eigandi að.
Þegar hér var komið, var komin nokkur ókyrrð í unga
liðsforingjann, svo að læknirinn vakti hann óðara af dá-
svefninum.
Nú var farið að grennslast eftir því í gömlum skjölum,
hvoi-t unnt væri að fá staðfestingu á einhverju af þessu.
Kom þá í ljós, að maður að nafni Benjamín Kemp haföi
rekiö búgarö á East Marsh, Poplar á árunum 1770—1780.
Annar ungur maður var síðan dáleiddur, skrifstofumað-
ur, 35 ára gamall. 1 dásvefninum fullyrti hann, að hann
héti Chris Haggerty, væri 35 ára gamall, og að ,,nú, í júní
1863“, væri hann stýrimaður á seglskipinu Orion, og að
nafn skipstjórans væri Wainwright.
Þetta var rannsakaö og kom í Ijós, aö áriö 1863 voru til
21p slcip, sem báru nafniö Orion, og á einu þeirra hét skip-
stjórinn Wainwright.