Morgunn - 01.12.1956, Blaðsíða 6
84
MORGUNN
Hjálp frá sálar-
rannsóknunum.
nýja lífs. Ég álít það skyldu prestanna í brezku kirkjunni,
að flytja ekki aðeins orð sín „yfir líkinu“, heldur einnig
veita með bænum sínum hinum látnu þjónustu og um leið
uppörvun og huggun ástvinunum, sem eftir eru á jörð-
unni. En huggun getum við prestar ekki veitt, nema vér
höfum verið huggaðir sjálfir, eins og
Páll postuli segir. En hvernig geta þeir
prestar veitt öðrum huggun, sem sjálf-
ir hafa hinar þokukenndustu og óljósustu hugmyndir um
lífið eftir dauðann, og naumast flytja nokkuru sinni pré-
dikun um það? Við hverju er að búast af prestum, sem
allflestir leiða alveg hjá sér að kynnast hinum sívaxandi
rökum og sönnunum fyrir framhaldslífi, sem verið hafa
að hlaðast upp nú í heila öld?“ Um það er ekki að villast,
hvert brezki presturinn er að fara, að hann er sannfærður
spíritisti, þegir ekki um það og veit hver styrkur spíritism-
inn hefir verið honum í prestsstarfinu. En hann beinir
orðum sínum einnig til þeirra, sem ekki vilja fara leið
sálarrannsóknanna. Hann bendir þeim á hina miklu mergð
sannana og sönnunargagna, sem sé að finna í ævisögum
og endurminningum margra þeirra karla og kvenna, sem
kirkjan hefir mestar mætur á og fengu vitranir og opin-
beranir um tilveru annars heims.
í blöðum og manna á milli ber oft á góma bóklestur
íslendinga. Sennilega lesa þeir enn flestra þjóða mest.
^ .^. Erlendir menn hafa mjög á því orð, að hvergi
va J sjái þeir í einkaheimilum annan eins bóka-
menn esa. kost ^ íslandi, og lengi mun verða að
leita að bæ á stærð við Reykjavík, sem hafi eins margar
bókaverzlanir og hún. En áreiðanlega hefir bókaval al-
mennings hér breytzt mikið á síðari árum. Undan því
þarf þó ekki að kvarta, að menn kaupi ekki bækur um
dulræn efni. Bókin Þjónusta Englanna, sem kom út í fyrra
á vegum Sálarrannsóknafélags Islands, hvarf af bóka-
markaðinum á fáum vikum,, að kalla má, og allmikið hefir
verið eftir henni spurt síðan hún varð ófáanleg. Líkt má
J