Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Side 13

Morgunn - 01.12.1956, Side 13
MORGUNN 91 °f the Mind), og ef niðurstöður hans eru réttar, leikur enginn vafi á því, að oss hefir verið opnaður nýr heimur mannlegra skynhæfileika til að rannsaka. Og það er mér Ijóst, að mjög erfitt er að fella þessar uppgötvanir inn í hugmyndir efnishyggjunnar eða hálfgerðrar efnishyggju um persónuleika mannsins og hug. Sú staðreynd, að með manninum býr skynhæfileiki, sem notar ekki hin líkam- legu skilningarvit, greiðir þeirri tilgátu rothögg, að hug- Urinn sé algerlega háður efninu og hugsunin ekki annað en skuggi af efnislegri hreyfingu. Skynjun án líkamlegra skilningarvita og öll fyrirbæri, sem má heimfæra til hennar, benda sterklega til þess, að jafnvel hin venjulega skynjun vor sé ekki algerlega bundin við skilningarvitin. Þau benda til annars og meira. Þau virðast benda til þess, að sem persónur og einstaklingar séum vér ekki eins háð tíma og rúmi og vér höfum vanið oss á að hugsa. Eitt þeirra vandamála, sem nú hljóta að kuýja hjá oss dyra, er spurningin um samband mannlegs hugar og lífs við tíma og rúm. Tíma þeim, sem mér er skammtaður til að ræða við yður um það, sem nú er að gerast á sviði sálarrannsóknanna, or að verða lokið. Þótt málflutningur minn hafi verið ófullkominn, vona ég að yður sé ljóst, að hér er mál, sem gefur yður mikið umhugsunarefni. Fyrirbrigðin og merk- ing þeirra verðskuldar það sannarlega, að sérhver hugs- andi maður gefi málinu fullan gaum. Og sérstaklega verð- skuldar það, að hugandi kristnir menn veiti því athygli. Vera kann, að vér stöndum nú á þröskuldi nýrrar þekk- mgar á mannlegum persónuleika, þekkingar, sem ekki sé þýðingarminni á sínu sviði en atómþekkingin er fyrir vitn- oskju vora um efnið. Og þetta hlýtur að skipta trúna stór- niiklu máli, að svo mildu leyti sem trúin á að svara spurn- mgunni: Hvað er maðurinn? Ég fæ ekki betur séð en að ntlit sé fyrir, að niðurstöðumar af þessum rannsóknum ttiuni styrkja trú vora og hnekkja hugmyndum efnis- ^yggjunnar um manninn og mannshugann.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.