Morgunn


Morgunn - 01.12.1956, Side 16

Morgunn - 01.12.1956, Side 16
94 MOEGUNN ástæðu til að halda, að þessi frænka mín væri feig, eða látin. En hún hafði andazt kl. 8.30 þetta sama kvöld, tíu mínútum fyrr en hún birtist mér. Með svipuðum hætti birtist mér frændi minn og fóstur- bróðir, Duncan, sem lá raunar í sjúkrahúsi í Dundee, þar sem við áttum heima. En okkur hafði ekki komið til hug- ar, að sjúkdómur hans væri svo alvarlegur, sem raun varð á. Þannig fékk ég á æskuárum mínum ýmist vitranir, aðvaranir eða sterk hugboð, þegar alvarleg tíðindi eða dauðsföll voru nálæg í fjölskyldunni. Móðir mín blessuð andaðist árið 1934. Nokkru síðar birtist hún mér, og það, sem óvænt var, með henni var frænka mín, sem ég vissi ekki að var látin. Það var kl. 5 að morgni, sem ég vaknaði af svefni við þessa sýn. Móðir mín sagði: „Við erum búin að sækja hana Jessie". Jessie var nafn þessarar frænku minnar. Ég virti hana fyrir mér, og mér til undrunar sá ég, að búið var að klippa fallega hárið hennar. Sama dag fékk ég fregn um andlát hennar. Hún hafði andazt nokkrum klukkustundum fyrr en hún virtist mér í morgunskímunni í svefnherbergi mínu. Og síðar fékk ég að vita, að skömmu fyrir andlátið, sem bar óvænt að, hafði hún látið klippa hár sitt. Þannig fékk ég sjálf fjölmargar sannanir fyrir návist látinna, sannanir, sem nægðu mér og ekki verða skýrðar sem hugsanaflutningur eða fjarhrif, eftir því sem ég fæ skilið. Frá styrjaldarárunum á ég margar minningar um sál- ræna reynslu. Það var í marzmánuði 1942, að ég var vakin þrjár nætur af ungum manni í hermannabúningi. Þá fékk ég vinkonu mína í lið með mér til að ná sambandi við þennan unga hermann með miðilsgáfu minni. Hann kom að sambandinu, sagði okkur nafn sitt, John Thyne, sem ég veit ekki til að ég hafi heyrt fyrr, sagði okkur hvað smá- bærinn hét: sem foreldrar hans ættu heima í, og sagði: „Farðu til mömmu, segðu henni þetta allt, segðu henni, að hún megi ekki syrgja mig og ekki hafa áhyggjur af mér“.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.